Björgólfur Thor: „Ólafur Ragnar sagði mér að koma heim. Strax.“

15897053591-072636ce90-z.jpg
Auglýsing

Tíma­ritið For­bes birtir ítar­legt við­tal við athafna­mann­inn Björgólf Thor Björg­ólfs­son á vef­síðu sinni í dag. Þar segir Björgólfur Thor meðal ann­ars frá því þegar Ólafur Ragnar Gríms­son, for­seti Íslands, hringdi í sig föstu­dag­inn 3. októ­ber árið 2008, skömmu fyrir banka­hrun­ið, og bað hann um að koma til Íslands. Á þessum tíma hafði Glitnir verið tek­inn yfir og Lands­bank­inn rið­aði til falls.

Í við­tal­inu er rifjað upp lífstíll Björg­ólfs Thors fyrir efna­hags­hrun­ið, hvernig hann flaug mönnum á borð við Mik­hail Gor­bat­sjov til Íslands í Chal­len­ger 600 einka­þot­unni sinni og hélt 120 manna fer­tugs­af­mælið sitt á Jamaíku þar sem meðal ann­arra Ziggy Marley og 50 cent léku fyrir dansi.

„Mér leið svo illa út af þessu öllu sam­an“



„Ég velti því fyrir mér hvort ég ætti að skríða undir stein og bíða eftir að storm­inum lægði. Mér leið svo illa út af þessu öllu sam­an,“ er haft eftir Björgólfi í við­tal­inu þegar hann rifjar upp reið­ina sem ríkti í garð banka­manna á Íslandi í kjöl­far efna­hags­hruns­ins, þar sem meðal ann­ars voru unnin skemmd­ar­verk á íbúð­ar­húsi hans og Hum­mer-jeppa.

Félög Björg­ólfs skuld­uðu tíu millj­arða Banda­ríkja­dala við banka­hrun­ið, þar af var hann í per­sónu­legum ábyrgðum fyrir um einn millj­arð dala, að því er fram kemur í grein For­bes. Eigur Björg­ólfs sem höfðu áður verið metnar á 3,5 millj­arða dala, féllu niður fyrir núllið.

Auglýsing

Brjáluð end­ur­koma



Grein For­bes ber fyr­ir­sögn­ina: „Brjáluð end­ur­kom­a: nær gjald­þrota en nú eini millj­arða­mær­ingur Íslands.“ Eins og fyr­ir­sögnin gefur til kynna er end­ur­koma Björg­ólfs Thors í við­skipta­lífið til umfjöll­unar sem og bók hans um sjálfan sig Billions to Bust - and Back sem höf­undur grein­ar­innar í For­bes segir að sé ótrú­lega hégóma­full til­raun til að stýra umræð­unni, en beri engu að síður nafn með rent­u. Til marks um það hafi Björgólfi nú tek­ist að end­ur­heimta sæti á For­bes list­an­um, en eignir hans í dag eru metnar á 1,3 millj­arða Banda­ríkja­dali, eða 173 millj­arða íslenskra króna.

Í grein­inni er farið yfir fjöl­skyldu­tengsl Björg­ólfs Thors og fjallað um gosverk­smiðju­æv­in­týri Björg­ólfs­feðganna í Rúss­landi og upp­gang þeirra á Íslandi með kaupum þeirra á Lands­bank­anum og síðar kaup Björg­ólfs Thors á lyfja­fyr­ir­tæk­inu Act­a­v­is.

Þegar mest gekk á í kjöl­far efna­hags­hruns­ins, og lána­drottnar og lög­menn herj­uðu á Björgólf, bjó hann í íbúð í Nott­ing Hill í Lund­únum og hafði aðgang að reiðu­fé. Hann segir að há skulda­staða Act­a­vis hafi ef til bjargað því að ekki fór verr. „Lána­drottn­arnir voru auð­vitað ekki ánægð­ir, og þeir köll­uðu mig á fundi og öskr­uðu á mig. En þeir þurftu að vinna með mér. Annað hvort komumst við í sam­ein­ingu út úr þessu, eða engin kemst út,“ segir Björg­fólfur Thor í sam­tali við For­bes.

„Ég gæti gert þetta allt aft­ur“



Þá er sagt frá frek­ari sam­skiptum Björg­ólfs Thors við lána­drottna, og hvernig hann gleymdi að hann ætti Ferr­ari bif­reið og íbúð í Pét­urs­borg þegar verið var að upp­lista eigur hans. Þá kveðst Björgólfur Thor hafa lært af reynsl­unni. „Eins og dýr sem lærir í frum­skóg­in­um, þá er ég í alvör­unni að reyna að læra eitt­hvað af þessu,“ segir Björgólfur Thor. Hann segir að hann muni fram­vegis halda sig við fjár­fest­ingar í geirum sem honum eru kunn­ugir, svo sem í fjar­skipta- og lyfja­geir­an­um, og þá í sam­starfi við aðra fjár­festa.

„Ég er enn ung­ur. Ég gæti gert þetta allt aft­ur. Ég gæti grætt millj­arð, tapað honum og samt haft tíma til að græða ann­an,“ segir Björgólfur Thor að lokum í umfjöllun For­bes.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None