Björn Jón Bragason ráðinn nýr ritstjóri Reykjavíkur vikublaðs

bjb.jpg
Auglýsing

Björn Jón Braga­son hefur verið ráð­inn nýr rit­stjóri Reykja­víkur viku­blaðs. Þá hefur Sig­urður Ing­ólfs­son verið ráð­inn rit­stjóri Aust­ur­lands viku­blaðs, en bæði blöðin eru í eigu  Pressunnar ehf. sem meðal ann­ars gefur út DV, dv.is, press­an.is og eyj­an.­is. Frá þessu er greint í frétt á síðast­nefnda vefnum.

Vef­pressan, sem er stýrt af Birni Inga Hrafns­syni, keypti útgáf­una Fótspor, sem gefur út ýmis viku­blöð víðs­vegar um land­ið, í júlí síð­ast­liðn­um. Samn­ingum við rit­stjóra blað­anna, sem voru verk­takar, var rift í kjöl­far­ið. Ingi­mar Karl Helga­son rit­stýrði áður Reykja­vík viku­blaði.

Í frétt Eyj­unnar segir að Björn Jón hafi unnið mar­gáttuð fræði­störf á umliðnum árum. "Eftir hann liggja tvær bækur og fjöldi tíma­rits- og blaða­greina. Þá hefur hann einnig stundað versl­un­ar­störf og starfað fyrir Sam­tök kaup­manna við Lauga­veg­inn og Félag hóp­ferða­leyf­is­hafa."

Auglýsing

Björn Jón hefur verið virkur í starfi Sjálf­stæð­is­flokks­ins og bauð sig meðal ann­ars fram til for­manns Sam­bands ungra sjálf­stæð­is­manna árið 2011, en náði ekki kjöri. ­Björn Jón bauð sig fram í 2.-3. sæti í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir kosn­ingar til borg­ar­stjórnar Reykja­víkur 2014 en var ekki í tíu efstu sæt­unum á lista flokks­ins.

Bæk­urnar sem Björn Jón hefur skrifað eru Haf­skip í skot­línu, sem var afrakstur tveggja ára rann­sókn­ar­vinnu um gjald­þrota­mál Haf­skips hf. og saka­mála­rann­sókn í kjöl­far þess.  ­Síð­ari bókin heit­ir ­Bylt­ing – og hvað svo? og kom út í ár. Þar er meðal ann­ars fjallað um það sem hann kallar einka­væð­ingu nýju rík­is­bank­anna haustið 2009 á gagn­rýnin hátt.

Í frétt Eyj­unnar segir að Dr. Sig­urður Ing­ólfs­son, nýr rit­stjóri Aust­ur­lands viku­blaðs, hafi víð­tæka reynslu af fjöl­miðl­um. Hann hefur rit­stýrt Aust­ur­glugg­an­um, verið frétta­rit­ari og töku­maður fyrir Stöð 2 á Aust­ur­landi og sinnt þátta­gerð fyrir RÚV.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None