Bogi útskýrir hlutabréfavísitölur

Helgi.png
Auglýsing

Helga Seljan þótti Bogi Ágústs­son heldur óskýr þegar hann las frétt um hækkun á hluta­bréfa­vísi­tölum Dow Jones, Nas­daq og S&P, í fjórða þætti Ferðar til fjár. Bogi var í miðri setn­ingu, að segja frá hækkun Dow Jones vísi­töl­unn­ar, þegar Helgi krafð­ist útskýr­inga.

„Vá,“ sagði Helgi. „Hvað var þetta?“

Auglýsing


„Þetta eru ann­ars konar vísi­töl­ur,“ sagði Bogi en í þriðja þætti útskýrði Bogi vísi­tölu neyslu­verðs. „Dow Jones vísi­talan mælir verð á hluta­bréfum í þrjá­tíu stórum banda­rískum fyr­ir­tækj­um. Hún er ekk­ert ofboðs­lega mikið not­uð. Vísi­talan er mikið notuð í fjöl­miðlum en ekki eins mikið á verð­bréfa­mörk­uð­um, aðrar hluta­bréfa­vísi­tölur þykja gagn­legri,“ sagði Bogi við Helga.



„Ókei, próf­aðu núna að útskýra þetta fyrir mér eins og ég sé fimm ára,“ sagði Helgi, og gerði Boga það nokkuð auð­veld­ara fyrir með réttri lík­ams­stell­ingu.



„Vísi­talan mælir verð á hluta­bréfum í 30 stórum fyr­ir­tækjum í amer­íku. Hvort að það fer hækk­andi eða lækk­andi. Ef að hluta­bréfa­verð þess­ara félaga þá hækkar vísi­talan, en lækkar ef hluta­bréfa­verð lækk­ar,“ útskýrði hann. Félögin sem til­heyra Dow Jones vísi­töl­unni eru öll rót­gróin banda­rísk félög og er vægi þeirra í vísi­töl­unni mis­jafnt eftir stærð þeirra. Meðal fyr­ir­tækj­anna eru Coca-Cola Company, Walt Dis­ney, Exxon, Microsoft og stór fjár­mála­fyr­ir­tæki. htt­p://mo­n­ey.cnn.com/data/dow30/.

Lítil áhrif á almenn­ing

„Hvaða áhrif hefði þetta á Helga eldri,“ spurði Helgi.



„Ekk­ert mjög mik­il, nema það yrðu mjög miklar sveiflur og mikið hrun,“ svar­aði Bogi. „Til dæmis þegar kreppan mikla hófst á 4. ára­tug síð­ustu ald­ar, þá varð gríð­ar­legt hrun hluta­bréfa á Wall Street. En frá degi til dags, þá hefur þetta litla þýð­ingu fyrir þig, því þú átt engin hluta­bréf.“

Svona er íslenska hluta­bréfa­vísi­talan

Á Íslandi er helsta hluta­bréfa­vísi­talan OMX I8. Hún mælir breyt­ingar á hluta­bréfa­verði átta stærstu hluta­fé­lag­anna í Kaup­höll­inni og er vægi þeirra í vísi­töl­unni mis­jafnt eftir stærð þeirra. Félögin átta eru Eim­skip, Grandi, Hag­ar, Icelanda­ir, Mar­el, N1, TM og VÍS. Með til­komu nýrra félaga hefur vísi­tala Kaup­hall­ar­innar breyst nokk­uð. Á síð­asta ári var þróun vísi­töl­unnar með þessum hætti, en hækkun frá árs­byrjun til árs­loka nam tæpum tveimur pró­sent­um:







Kjarn­inn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vik­ur. Mark­mið­ið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönn­um! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 19. febr­ú­ar. Fylgstu með á Face­book-­síðu Ferðar til fjár.



ferd-til-fjar_bordi

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None