Bókarinn í Auschwitz dæmdur í fjögurra ára fangelsi

groning_auschwitz.jpg
Auglýsing

Þýskur dóm­stóll í Lüneburg hefur kveðið upp fjög­urra ára fang­els­is­dóm yfir hinum 94 ára Osk­ari Grön­ing. Hann hefur verið þekktur sem „Bók­ar­inn í Auschwitz, en hann hafði það hlut­verk í útrým­ing­ar­búðum nas­ista í seinni heim­styrj­öld­inni að telja eigur fang­anna sem nas­istar gerðu upp­tæk­ar.

Grön­ing var ákærður fyrir að hafa átt þátt í morðum að minnsta kosti 300.000 gyð­inga en á end­anum dæmdur fyrir stuðla að fjöldamorð­um. Hann hefur sagst telja sig sið­ferði­lega sekan af glæp­un­um. BBC greinir frá þessu. Nokkrir þeirra sem komust lífs af úr Auschwitz og eru enn á lífi báru vitni gegn Grön­ing.

Sak­sókn­ari fór fram á að Grön­ing yrði dæmdur fyrir þjóð­ar­morð vegna þess að hann hafi hjálpað til við að fram­kvæmdin gengi auð­veld­lega fyrir sig. Lög­menn hans segja hins vegar að þáttur hans í glæpum nas­ista ­geti varla talist hafa ver­ið ­þjóð­ar­morð.

Auglýsing

Rétt­ar­höldin fjöll­uðu því um hversu stóran þátt fólk þurfti að hafa átt í þjóð­ar­morðum nas­ista til þess að hafa brotið af sér, án þess að drepa nokkurn mann.

Vegna ald­urs er óvíst hvort Grön­ing muni nokk­urn­tíma þurfa að afplána dóm sinn í fang­elsi en hann er að öllum lík­indum meðal síð­ustu nas­istum sem sæta rétt­ar­höldum vegna gjörða þeirra í seinni heim­styrj­öld­inni.

Grön­ing er ólíkur öðrum nas­istum sem réttað hefur verið yfir vegna glæpa þeirra í seinni heim­styrj­öld­inni vegna þess að hann hefur lengi talað opin­ber­lega um hlut­verk sitt og útrým­ing­ar­búð­irn­ar. Hann seg­ist hafa gert það til þess að þagga þá sem telja hel­för­ina aldrei hafa átt sér stað.

Í heim­ild­ar­mynd BBC um Auschwitz frá 2005 segir hann: „Ég sá gasklef­ana. Ég sá lík­brennslu­ofn­ana. Ég var á ramp­inum þegar þeir völdu fólkið sem átti að fara í gasklef­ana.“

Þagði um Auschwitz í fyrstu



Auschwitz-Birkenau Talið er að 1,1 milljón manns hafi verið myrtir í Auschwitz-Birkenau.

 

Grön­ing var alinn upp af ströngum föður sem missti allt sitt í krepp­unni á þriðja ára­tug síð­ustu ald­ar. Hann fékk fljótt áhuga á stríði og vildi kom­ast í sér­hæfða her­deild í þýska hern­um. Grön­ing skráði sig því til liðs við Stormsveitir nas­ista árið 1940, 19 ára gam­all.

Eftir að hafa unnið sem bók­ari fyrir SS-sveit­irnar var hann sendur til Auschwitz árið 1941 eftir að hafa skrifað undir þagn­areið um það sem hann myndi sjá og gera. Grön­ing var for­vit­inn um hvaða furðu­legi staður þetta væri sem hann hefði verið sendur á og spurði yfir­menn sína. Þeir sögðu honum hins vegar að hann þyrfti að kom­ast að því sjálfur því Auschwitz væru sér­stakar fanga­búð­ir. Grön­ing starf­aði við útrým­inga­búð­irnar í Pól­landi í heilt ár.

Grön­ing þagði um veru sína í Auschwitz eftir að hafa gef­ist upp fyrir breskum her­sveitum í júní 1945. Hann seg­ist hafa áttað sig á því að starf hans í Auschwitz gætu haft í för með sér nei­kvæð við­brögð. Hann sagð­ist því hafa verið með ann­ari her­deild og sagði svo síðar hafa gert það vegna þess að sig­ur­veg­arnir skrifa sög­una og að það sem gerð­ist í Auschwitz hefði ekki alltaf verið mann­úð­legt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None