Breska ríkisútvarpið sker niður og fækkar störfum um þúsund

h_51859431-1.jpg
Auglýsing

Breska rík­is­út­varpið BBC mun ­leggja niður fleiri en þús­und störf í sparn­að­ar­skyni til þess að mæta því að 150 millj­ónir punda vantar upp á í rekstur fjöl­mið­ils­ins fyrir árið 2016-2017. Starfs­fólki mun því fækka um meira en fimm pró­sent fyrir upp­haf næsta árs, en nú starfa um 18 þús­und manns hjá stofn­un­inni.

Þessar 150 millj­ónir punda sem vantar upp á eru að mestu leyti til­komnar vegna þess að fleiri heim­ili en gert hafði verið ráð fyrir borga ekki afnota­gjöld. Milljón færri Bretar segj­ast eiga sjón­varp en gert hafði verið ráð fyrir í áætl­unum frá árinu 2011.

Tony Hall, fram­kvæmda­stjóri BBC, til­kynnti starfs­fólki þetta á fundi í London í morg­un. Hann sagði að nú þegar hefði verið veru­lega skorið niður í rekstri BBC en að á erf­iðum tímum þurfi að leggja áherslu á það sem skiptir virki­lega máli - að búa til fram­úr­skar­andi efni og dag­skrá fyrir alla áhorf­endur og áheyr­end­ur. „Mín meg­in­til­laga er þessi - áður en við gerum nokkuð annað sem hefur áhrif á þjón­ustu okkar - þá þurfum við að tryggja að við séum að reka þetta á eins árang­urs­rík­an, áhrifa­ríkan og ein­faldan hátt og mögu­legt er.“

Auglýsing

Gert er ráð fyrir því að 50 millj­ónir punda sparist með því að fækka stjórn­endum og sam­eina deild­ir. Sums staðar í stofn­un­inni eru tíu lög af stjórn­end­um, en eftir breyt­ingar verða aldrei fleiri en sjö lög stjórn­enda. Þetta verður til þess að sér­stak­lega hátt­settir stjórn­endur munu koma til með að missa vinn­una.

Þá verða gerðar breyt­ingar á stoð­deildum eins og mark­aðs- og sam­skipta­deild­um, fjár­mála­deild­um, mannauðs­deild­um, tölvu- og lög­fræði­deild­um. Ein­falda á þessar deildir og það verður til upp­sagna líka.

Hall sagð­ist gera sér grein fyrir því að þetta yrði mjög erfitt, og að margir myndu nú ótt­ast um stöðu sína. „Þetta eru miklar breyt­ingar og þær munu eiga sér stað nokkuð hratt. En - ég vil að þið vitið það öll að við munum gera þetta almenni­lega og á sann­g­arnan hátt.“

Afnota­gjöld hafa ekki verið hækkuð und­an­farið og kostn­aður BBC hefur auk­ist. Stjórn­völd í Bret­landi hafa uppi áform um að hætta að sekta fólk fyrir að borga ekki afnota­gjöld en nota samt þjón­ust­una. Talið er að það gæti rýrt tekjur stofn­un­ar­innar um 200 millj­ónir punda til við­bót­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None