Breytingar á forsætisráðuneytinu - Stefán Thors Húsameistari ríkisins

17982668533_9515f12a3b_b.jpg
Auglýsing

For­sæt­is­ráð­herra und­ir­rit­aði í dag breytt skipu­rit for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. Með breyt­ing­unum er tryggt að skipu­lagið end­ur­spegli for­yst­u-, verk­stjórn­ar- og sam­ræm­ing­ar­hlut­verk for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins þvert á önnur ráðu­neyti og mark­miðið er að þær leiði til hag­ræð­ing­ar, segir í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyti Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar.

„Með nýju skipu­lagi fjölgar mál­efna­skrif­stofum í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu um eina, þegar skrif­stofa þjóð­hags­mála verður sett á lagg­irn­ar. Hinar mál­efna­skrif­stof­urnar eru skrif­stofa yfir­stjórn­ar, skrif­stofa lög­gjaf­ar­mála, skrif­stofa stjórn­sýslu­þró­un­ar, skrif­stofa fjár­mála og skrif­stofa þjóð­menn­ing­ar, sem áður nefnd­ist skrif­stofa menn­ing­ar­arfs. Hlut­verk skrif­stofu þjóð­hags­mála verður að greina stöðu og þróun efna­hags­mála inn­an­lands og utan, meta horfur í efna­hags­málum og móta til­lögur í mála­flokknum fyrir for­sæt­is­ráð­herra og rík­is­stjórn á hverjum tíma. Skrif­stofa þjóð­hags­mála mun hafa umsjón með ráð­herra­nefndum um efna­hags­mál og rík­is­fjár­mál, en við­búið er að vægi og umfang nefnd­ar­starfs­ins auk­ist veru­lega sam­hliða gild­is­töku nýrra laga um opin­ber fjár­mál, sbr. frum­varp sem er til með­ferðar á Alþingi. Þá mun Hag­stofa Íslands fær­ast undir skrif­stofu þjóð­hags­mála. Skrif­stofan mun fyrir hönd ráðu­neyt­isins sinna sam­skiptum við aðila fyr­ir­hug­aðs þjóð­hags­ráðs og vera ráð­inu til aðstoð­ar. Sam­hliða skipun í emb­ætti  skrif­stofu­stjóra á skrif­stofu þjóð­hags­mála verður starf efna­hags­ráð­gjafa for­sæt­is­ráð­herra og ráð­herra­nefnda rík­is­stjórn­ar­innar lagt nið­ur,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Verka­skipt­ing milli skrif­stofa mun breyt­ast nokk­uð. Ráð­herra­nefnd um sam­ræm­ing­ar­mál, Norð­ur­slóðir og mál­efni flótta­fólks og inn­flytj­enda falli undir skrif­stofu yfir­stjórnar og ráð­herra­nefnd um lýð­heilsu­mál og jafn­rétt­is­mál heyri undir skrif­stofu stjórn­sýslu­þró­un­ar.

Auglýsing

Með breyt­ingum á lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands síð­ast­liðið vor veitti Alþingi ráðu­neytum heim­ild til að setja á lagg­irnar sér­stakar starfsein­ingar innan ráðu­neyt­anna – svo­kall­aðar ráðu­neyt­is­stofn­an­ir. Með fyr­ir­hug­uðum skipu­lags­breyt­ingum í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu verður ráðu­neyt­is­stofn­un­inni komið á og hefur stofn­unin fengið heitið Húsa­meist­ari rík­is­ins. Stefán Thors, fyrr­ver­andi ráðu­neyt­is­stjóri í umhverf­is- og auð­linda­ráðu­neyt­inu, mun gegna því starfi. „Hún mun ann­ast  fast­eignir Stjórn­ar­ráðs­ins, for­sæt­is­ráðu­neytis og emb­ættis for­seta Íslands s.s. við­haldi og útboðum og móta til­lögur að hag­ræð­ingu í rekstri fast­eigna og ann­arra verk­efna stjórn­ar­ráðs­ins, m.a. með hlið­sjón af til­lögum hag­ræð­ing­ar­hóps rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Stofnun Húsa­meist­ara rík­is­ins mun hafa umsjón með örygg­is­málum í bygg­ingum Stjórn­ar­ráðs­ins, bera ábyrgð á vakt­þjón­ustu o.fl. Hún mun vinna náið með skrif­stofu þjóð­menn­ingar í mál­efnum er varða vernd mann­virkja og menn­ing­ar­tengdrar byggðar og þjóð­garða og þjóð­lendna,“ segir í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None