Búið að samþykkja að veita næstum helmingi meira í hlutdeildarlán en greitt hefur verið út

Við lok árs 2021 var búið að greiða út 2,5 milljarða króna vegna hlutdeildarlána úr ríkissjóði. Á sama tíma var búið að samþykkja að veita hlutdeildarlán að andvirði 4,9 milljarða í heildina.

Hús
Auglýsing

Búið var að sam­þykkja 578 umsóknir að hlut­deild­ar­lán fyrir alls 4,9 millj­arða króna um ára­mót­in, þrátt fyrir að ein­ungis hafi verið búið að greiða út 302 lán fyrir 2,5 millj­arða króna á þeim tíma­punkti. Þetta kemur fram í svari Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) við fyr­ir­spurn Kjarn­ans. Í upp­hafi mán­aðar voru því næstum jafn margir komnir með sam­þykkt hlut­deild­ar­lán og til­búnir að fjár­festa í íbúð og höfðu náð að klára kaup, eftir að hafa fengið hlut­deild­ar­lán.

Í upp­lýs­ingum sem Kjarn­inn fékk frá HMS segir jafn­framt að alls hafi 945 umsóknir borist um hlut­deild­ar­lán frá því síðla árs 2020. Þá var úrræð­ið, sem felur í sér að tekju­lágum fyrstu kaup­endum er veitt afborg­ana­laust lán úr rík­is­sjóði fyrir allt að 20-30 pró­sentum af virði íbúð­ar, sem síðan er greitt til baka þegar íbúðin er seld. Ríkið ger­ist þannig með­fjár­fest­ir, en lán­taki þarf að reiða fram að minnsta kosti 5 pró­sent kaup­verðs­ins sjálf­ur.

578 umsóknir hafa verið sam­þykkt­ar, sem áður seg­ir, sem þýðir að lánin eru 8,5 millj­ónir króna að með­al­tali. 276 umsækj­endur um hlut­deild­ar­lán eru því með vil­yrði fyrir láni frá rík­inu, en hafa e.t.v. ekki fundið íbúð til þess að kaupa – eða bíða þess að íbúð sem er í bygg­ingu verði til­bú­in. Afar fáar íbúðir sem komið hafa inn á hús­næð­is­mark­að­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á und­an­förnum mán­uðum hafa verið í þeim verð­flokki sem hlut­deild­ar­lánin ná utan um.

Of háar tekjur helsta ástæða synj­unar

Í töl­unum frá HMS segir að 132 umsóknum hafi hins vegar verið synj­að. Í 235 til­fellum var svo ýmist hætt við umsókn­ina eða gögn vant­aði. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá HMS er helsta ástæðan fyrir synjun umsókna sú að umsækj­and­inn hafi haft of háar tekjur til að geta fengið hlut­deild­ar­lán.

Auglýsing

Hlut­deild­ar­lánin eru sam­kvæmt reglu­gerð sem um þau gilda ein­ungis veitt ein­stak­lingum með undir 7,56 milljón króna tekjur á und­an­förnum 12 mán­uðum eða þá hjónum og sam­búð­ar­fólki sem hafa sam­an­legt 10,56 millj­óna króna tekjur á sama tíma­bili. Við leyfi­legar hámarks­tekjur bæt­ast reyndar 1,56 millj­ónir króna fyrir hvert barn eða ung­menni að 20 ára aldri sem er á fram­færi umsækj­anda eða býr á heim­il­inu.

Tæpar 700 millj­ónir lán­aðar í Reykja­vík

Flest hlut­deild­ar­lán af þeim sem eru hafa verið greidd út eru í Reykja­vík, sam­kvæmt nýlegu svari Sig­urðar Inga Jóhann­es­sonar inn­við­a­ráð­herra við þing­fyr­ir­spurn Björns Levís Gunn­ars­sonar þing­manns Pírata.

Alls eru lánin í Reykja­vík 80 tals­ins að and­virði 693,5 millj­óna króna. Flest eru þau í póst­núm­eri 108 í borg­inni, eða 35 tals­ins.

Fram kemur í svari HMS til Kjarn­ans að rekja megi fjölda lána í því póst­núm­eri til nýbygg­inga við Síðu­múla og Grens­ás­veg, sem fóru í sölu á sein­asta ári. Ef horft er á póst­núm­erin í Reykja­vík hafa næst­flest hlut­deild­ar­lán verið veitt í 112 Graf­ar­vogi, eða 23 tals­ins, en undir tíu í öllum öðrum póst­núm­erum innan borg­ar­markanna.

Þegar horft er til sveit­ar­fé­laga, á mynd­inni hér að ofan, sést að fyrir utan Reykja­vík­ur­borg hafa næst­flest lán verið veitt í Reykja­nes­bæ, eða 65 tals­ins. Þar hafa tæpar 517 millj­ónir króna verið greiddar út vegna lán­anna. Á Akur­eyri hafa svo 46 hlut­deild­ar­lán verið greidd út, að and­virði 318 millj­óna króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent