Býst við töluverðu atvinnuleysi næstu árin

Það gæti tekið nokkur ár að ná atvinnuleysinu niður í fyrra horf, skrifar hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands í nýjasta tölublaði Vísbendingar.

Gengi ferðaþjónustunnar á næstu árum hefur mikið um það að segja hvort atvinnuleysi muni haldast hátt eða ekki.
Gengi ferðaþjónustunnar á næstu árum hefur mikið um það að segja hvort atvinnuleysi muni haldast hátt eða ekki.
Auglýsing

Þrátt fyrir að búist sé við til­tölu­lega snörpum við­snún­ingi í fram­leiðslu gæti tekið langan tíma að ná niður atvinnu­leys­inu, meðal ann­ars vegna hárra raun­launa og óvissu um fram­tíð ferða­þjón­ust­unn­ar. Þetta skrifar Elís Pét­urs­son, hag­fræð­ingur hjá Seðla­banka Íslands, í grein sinni í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Sam­kvæmt Elísi er lík­legt að fyr­ir­tæki muni fyrst nýta betur þá fram­leiðslu­getu sem er til staðar áður en þau taka að fjölga starfs­fólki í miklum mæli í efna­hags­við­snún­ingnum að far­aldr­inum lokn­um. Þetta kæmi einkum fram í auk­inni fram­leiðni vinnu­afls og/eða lengri með­al­vinnu­tíma. Á sama tíma er gert ráð fyrir að fólki á vinnu­aldri fjölgi tölu­vert á næstu árum, sem leiðir til þess að fleiri störf þurfi til að ná atvinnu­leys­inu nið­ur.

Elís segir líka að lang­tíma­at­vinnu­leysi, sem er nú meira en í kjöl­far fjár­málakrepp­unn­ar, gæti hægt á við­snún­ingi á vinnu­mark­aðn­um, þar sem færni glat­ast og líkur á að finna starf minnka við langa atvinnu­leit. Því gefi hátt hlut­fall lang­tíma­at­vinnu­lausra vís­bend­ingar um að atvinnu­leysi muni hald­ast stöðugt í hærri pró­sentu en áður.

Auglýsing

Launa­hækk­anir og óvissa um ferða­þjón­ust­una áhættu­þættir

Elís bendir einnig á að vægi ferða­þjón­ust­unnar í hag­kerf­inu gæti minnkað í fram­tíð­inni, líkt og ger­ist venju­lega þegar ein atvinnu­grein verður fyrir fram­leiðniskelli. Þar sem hátt hlut­fall starfs­fólks í ferða­þjón­ust­unni sé ósér­hæft gæti tekið langan tíma fyrir þá að finna sér nýtt starf.

Elís Pétursson, hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands.

Þar að auki hafi kjara­samn­ings­bundnar launa­hækk­an­ir, sem séu úr takt við fram­leiðni­þróun aukið kostn­að­ar­þrýst­ing í atvinnu­greinum líkt og ferða­þjón­ust­unni, þar sem hlut­fall lág­launa­starfa sé hátt. Þetta gæti ýtt undir sjálf­virkni­væð­ingu slíkra atvinnu­greina, sem myndi hægja á nýjum ráðn­ingum enn frek­ar.

Seðla­bank­inn spáir því að atvinnu­leysi muni nema um 6 pró­sentum árið 2023, eða ein­ungis 0,3 pró­sentu­stigum lægra en það var í fyrra. Til við­mið­unar var atvinnu­leysi um það bil helm­ingi lægra árið 2018, eða um 3,1 pró­sent.

Elís bendir þó á að margir óvissu­þættir séu bundnir þess­ari spá og að atvinnu­leysi gæti minnkað mun hraðar ef ferða­þjón­ustan nær sér aftur á strik fljótt. Sam­kvæmt honum eru til að mynda fáar vís­bend­ingar um að áhugi ferða­manna á Íslandi sem áfanga­stað hafi dvínað og fram­boð flug­ferða til og frá land­inu eigi mögu­lega eftir að aukast enn frekar, meðal ann­ars með til­komu flug­fé­lags­ins PLAY.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu með því að smella hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent