CCP hættir að greiða starfsmönnum í evrum

ccp_vef.jpg
Auglýsing

Íslenska tölvu­leikja­fyr­ir­tækið CCP hætti í dag að greiða starfs­mönnum sínum á Íslandi laun í evrum eins og verið hefur und­an­farin ár. Laun sem starfs­fólk fékk í dag voru í krón­um.

CCP stað­festir þetta í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um málið en svar­aði fyr­ir­spurn­inni ekki að öðru leyti vegna þess að fyr­ir­tækið ræði ekki um launa­mál starfs­manna í fjöl­miðl­um.

Það vakti athygli þegar CCP ákvað að bjóða starfs­fólki upp á laun í evr­um, en starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins á Íslandi bauðst frá og með 1. jan­úar 2009 að fá greidd laun í evr­um. Frá þessu var greint í Morg­un­blað­inu þann 30. des­em­ber 2008 og þá sagði Hilmar Veigar Pét­urs­son, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, að tvennt lægi að baki þeirri ákvörð­un. „Ann­ars vegar erum við ­með fjölda erlendra starfs­manna hér á landi og sumir þeirra eru með skuld­bind­ingar í öðrum gjald­miðl­u­m.“ Óvissan sem þá ríkti í geng­is­málum hefði verið þessu fólki erf­ið. „Hins vegar hafa sveiflur á gengi krón­unnar kom­ið illa við fyr­ir­tæk­ið, því erfitt er að gera áætl­anir fram í tím­ann þegar gengið sveifl­ast öfganna á milli á skömmum tíma. Nær allar okkar tekjur eru í erlendri mynt og tak­ist okkur að auka hlut­fall erlendra gjald­miðla í útgjöldum náum við meira jafn­vægi í rekstr­ar­reikn­ingi okk­ar.“

Auglýsing

Í umfjöllun í Frétta­blað­inu í apríl 2009 sagði Hilmar Veigar svo að fyr­ir­tækið væri með marga sér­fræð­inga í vinnu, bæði inn­lenda og erlenda. „Við lítum svo á að það sé ekki rétt­læt­an­legt annað en borga þeim laun sem eru sam­keppn­is­hæf á alþjóða­vís­u.“

Segja stærsta fram­taks­sjóð heims­ins vilja eign­ast CCP



Greint er frá því í Við­skipta­blað­inu í dag að stærsti fram­taks­sjóður í heimi, New Enter­prise Associ­ates, og Novator, félag Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­son­ar, hafi verið á hött­unum eftir hluta­bréfum í fyr­ir­tæk­inu. Við­skipta­blaðið segir að boðið hafi verið allt að 2.500 krónur á hlut. NP ehf, sem er í eigu Novator, á nú um 43% hlut í fyr­ir­tæk­inu, en átti 29,74% um síð­ustu ára­mót. Fyr­ir­tækið er því orðið stærsti ein­staki hlut­haf­inn í CCP.

New Enter­prise Associ­ates er banda­rískur sjóður sem á eignir sem eru metnar á átján millj­arða Banda­ríkja­dala. Við­skipta­blaðið hefur heim­ildir fyrir því að sjóð­ur­inn hafi nú þegar eign­ast 10% eign­ar­hlut í fyr­ir­tæk­inu.

CCP tap­aði meira en 87 millj­ónum dala síð­ustu tvö ár.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None