Clarkson, Hammond og May gera bílaþætti hjá Amazon

topgear.jpg
Auglýsing

Fyrr­ver­andi þátta­stjórn­endur bresku bíla­þátt­anna Top Gear hafa skrifað undir samn­ing við vefrisan Amazon og munu sjá um bíla­þætti á sér­stakri vefrás fyr­ir­tæk­is­ins. Eftir að BBC sleit samn­ingi sínum við einn hefur teymið fengið að velja úr til­boðum ann­ara sjón­varp­stöðva.

Jer­emy Clarkson, Ric­hard Hamm­ond og James May sáu um Top Gear-þætt­ina á BBC í 12 ár þangað til í mars í ár, þegar Clarkson var sagt upp vegna ítrek­aðra brota í starfi. Hann hafði þá verið ávíttur nokkrum sinnum fyrir fúk­yrði í þátt­unum og kyn­þátt­a­níð, en eftir að hann kýldi einn fram­leið­enda þátt­anna var hann lát­inn fara.

May og Hamm­ond sögðu starfi sínu lausu í kjöl­farið og hafa síð­an, ásamt Clarkson, verið að und­ir­búa end­ur­komu í sjón­varp ann­ar­staðar en á BBC. Þre­menn­ing­arnir höfðu verið orð­aðir við ITV og Net­flix auk fleiri sjón­varp­stöðva.

Auglýsing

„Mér líður eins og ég hafi klifið úr tví­þekju og yfir í geim­skip,“ sagði Clarkson um nýja vinnu­stað­inn. May þykir formið einnig nýstár­legt: „Við erum orðnir hluti af nýrri öld snjall­sjón­varpa. Kald­hæð­ið, ekki satt?“

Þætt­irnir munu ekki heita Top Gear enda er það heiti í eigu BBC og var raunar til löngu áður en þeir Clarkson og Hamm­ond tóku við stjórn þátt­ar­ins árið 2002. Ekki hefur verið ákveðið hvað þætt­irnir á Amazon munu heita.

Þætt­irnir á vefnum verða aðeins aðgengi­legir áskrif­endum að Amazon Pri­me, þjón­ustu sem er ekki ólík Net­flix og geymir stórt safn kvik­mynda og sjón­varps­þátta. Amazon fram­leiðir einnig fleiri þætti, sem hafa meira að segja hlotið Golden Glo­be-verð­laun.







Top Gear heldur áfram



Síðan þrí­eykið tók við stjórn Top Gear hafa þætt­irnir verið ein helsta sölu­vara BBC til ann­ara sjón­varp­stöðva víðs­vegar um heim­inn og skilað gríð­ar­legum tekj­um. Aðrar sjó­varp­stöðv­ar, til dæmis í Banda­ríkj­unum og Ástr­al­íu, hafa einnig fram­leitt Top Gear-þætti til hliðar við upp­runa­legu bresku þætt­ina.

Ákvarð­anir stjórnar BBC í máli Top Gear og Jer­emy Clarkson hafa alltaf ver­ið ­um­deild­ar, enda kosta þætt­irnir mikið auk þess sem vin­sældir þátt­ana eru bein­tengdar per­són­unum sem kynna þá.

Clarkson hafði þess vegna ítrekað kom­ist upp með kyn­þátt­a­níð og fúk­yrði gagn­vart konum og stjórn­mála­mönnum í þátt­unum þrátt fyrir mik­inn þrýst­ing um að honum verði sagt upp. Lík­ams­árás á starfs­mann BBC gerði hins vegar úts­lag­ið.

Clarkson hefur beðist vel­virð­ingar á flestu því sem hann hefur gert af sér í sjón­varpi. Hann útskýrir lík­ams­árás­ina sem afleið­ingu álags vegna vinnu og að hann hafði nýlega verið greindur með krabba­mein, sem hann vissi ekki hvort væri góð­kynja eða ill­kynja.

Þegar hefur nýr aðal­kynnir þátt­anna á BBC verið kynnt­ur. Það er fjöl­miðla­mað­ur­inn Chris Evans sem und­an­farið hefur starfað sem útvarps­mað­ur. Enn er leitað að tveimur þátta­stjórn­endum til við­bót­ar. Nýverið var For­múlu 1-öku­þór­inn Jen­son Button orð­aður við þætt­ina, en hann er samn­ings­bund­inn McL­aren-lið­inu í For­múlu 1 út árið 2016.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None