Costco tryggir sér landsvæði og byggingu undir verslun og bensínstöð í Garðabæ

CostcoMoncton.jpg
Auglýsing

For­svars­menn versl­un­ar­keðj­unnar Costco Who­les­ale hafa und­ir­ritað samn­ing við Garðabæ sem tryggir Costco land­svæði og bygg­ingu í Kaup­túni. Í til­kynn­ingu um gerð samn­ing­ins segir að á svæð­inu verði rekin „starf­semi fyrir með­limi“ og bens­ín­stöð. Umsókn um breyt­ingar á skipu­lagi svæð­is­ins verði skilað inn eins fljótt og auðið er. Stefnt er að opnun vöru­húss fyrir með­limi sum­arið 2016.

Haft er eftir Steve Pappas, aðstoð­ar­for­stjóra og fram­kvæmda­stjóra félags­ins í Bret­landi og á Íslandi, að félagið muni ráða 160 starfs­menn í fyrst­u. „Við erum mjög spennt fyrir þessu frá­bæra tæki­færi og getum ekki beðið eftir að opna á Íslandi. Þetta er góður mark­aður fyrir okk­ur. Við hlökkum til að vinna að því með Gunn­ari Ein­ars­syni bæj­ar­stjóra og bæj­ar­yf­ir­völdum Garða­bæjar að gera þetta verk­efni að veru­leika eins fljótt og auðið er til að geta svo opnað versl­un­ina sum­arið 2016. Við munum ráða 160 starfs­menn til starfa í fyrstu en þeir verða svo orðnir að minnsta kosti 250 eftir þrjú ár, þegar rekst­ur­inn er kom­inn betur af stað. Við munum lík­lega hefja ráðn­ingar starfs­manna í byrjun árs 2016.“

Alþjóð­leg keðja með­ eigið vöru­merki



Í til­kynn­ing­unni er fyr­ir­komu­lag og rekstur Costco versl­ana rak­in. Keðjan er alþjóð­leg, vöru­hús hennar eru 679 tals­ins og með­limir eru um 71 millj­ón. Costco er aðeins opið með­lim­um, það eru ein­stak­ling­ar, fyr­ir­tæki og það sem kallað er „úr­vals­að­ild“.

Full­yrt er að í versl­unum keðj­unnar séu seldar gæða­vörur frá þekktum vöru­merkjum á lægra verði en fyr­ir­finnst venju­lega hjá öðrum heild­sölu- eða smá­sölu­að­il­um. „Í vöru­húsum Costco er að finna eitt stærsta og fjöl­breyttasta vöru­úr­val sem völ er á. Dæmi um vöru­flokka eru mat­vör­ur, sæl­gæti, heim­il­is­tæki, sjón­vörp, auka­hlutir fyrir bíla, dekk, leik­föng, bygg­ing­ar­vör­ur, íþrótta­vör­ur, skart­grip­ir, úr, mynda­vél­ar, bæk­ur, hús­bún­að­ur, fatn­að­ur, snyrti­vör­ur, tóbak, hús­gögn og rit­föng. Costco er þekkt fyrir að selja hágæða­vöru­merki á verði sem iðu­lega er lægra en hjá öðrum heild­sölu- eða smá­sölu­að­il­um, og ábyrgist auk þess 100% ánægju við­skipta­vina sinna.

Auglýsing

Í Costco er einnig að finna gæða­vörur undir vöru­merk­inu Kirkland Signat­ure, sem er eigið merki versl­un­ar­inn­ar. Fyr­ir­tækið hefur lagt sig fram um að velja vöru­teg­undir á borð við hús­bún­að, far­ang­ur, dýra­mat og dýra­vör­ur, bleyj­ur, þurrk­ur, kaffi, vín og snakk, auk úrvals af fersku kjöti, mjólk­ur­vörum, sæl­kera­vörum, ferskum og frosnum mat og brauð­meti. Costco leggur sig fram við að tryggja að vörur frá Kirkland Signat­ure séu í hæsta gæða­flokki.

Vöru­hús Costco í Garðabæ mun einnig bjóða upp á þjón­ustu á borð við apó­tek, sölu sjón­tækja og sjón­mæl­ingu, dekkja­sölu og dekkja­verk­stæði, bak­arí og sæl­kera­versl­un,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None