Dómur í Al-Thani málinu hefur ekki áhrif á hæfi Ólafs til stjórnarsetu

domsmal-sigurdur.03-1.jpg
Auglýsing

Ólafur Ólafs­son, stjórn­ar­for­maður og aðal­eig­andi hol­lenska félags­ins Sam­skip Hold­ing B.V. sem er móð­ur­fé­lag Sam­skipa hf, hlaut fjög­urra og hálfs árs fang­els­is­dóm í Hæsta­rétti Íslands í gær fyrir aðild sína að Al-T­hani mál­inu svo­kall­aða. Dóm­ur­inn hefur ekki á­hrif á hæfi Ólafs til stjórn­ar­setu á Íslandi, þar sem hann var sýkn­aður af ákæru­lið máls­ins þar sem honum var gefin að sök hlut­deild að umboðs­svik­um.

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans hefur dóm­ur­inn ekki heldur áhrif á hæfi hans til að eiga sæti í stjórn móð­ur­fé­lags Sam­skipa í Hollandi.

Sekur um hlut­deild að mark­aðs­mis­notkun



Í 66. grein laga um hluta­fé­lög segir að stjórn­ar­menn eða fram­kvæmda­stjórar megi ekki hafa hlotið dóm í tengslum við atvinnu­rekstur á síð­ustu þremur árum fyrir refsi­verðan verknað sam­kvæmt almennum hegn­ing­ar­lög­um, lögum um hluta­fé­lög, einka­hluta­fé­lög, bók­hald, árs­reikn­inga, gjald­þrot eða opin­ber gjöld.

Kveðið er á um umboðs­svik í 249 grein almennra hegn­ing­ar­laga, en þar seg­ir: „Ef mað­ur, sem fengið hefur aðstöðu til þess að gera eitt­hvað, sem annar maður verður bund­inn við, eða hefur fjár­reiður fyrir aðra á hendi, mis­notar þessa aðstöðu sína, þá varðar það fang­elsi allt að 2 árum, og má þyngja refs­ing­una, ef mjög miklar sakir eru, allt að 6 ára fang­elsi.“

Auglýsing

Ólafur var sak­felldur fyrir aðild að mark­aðs­mis­notkun í Al-T­hani mál­inu, en kveðið er á um þau atriði sem falla undir mark­aðs­mis­notkun í lögum um verð­bréfa­við­skipti.

Engin við­brögð frá Sam­skipum



Svokölluð B.V. félög, lúta ekki sér­stöku eft­ir­liti hjá hol­lenskum eft­ir­lits­stofn­un­um, og sam­kvæmt upp­lýs­ing­um Kjarn­ans hefur sak­fell­ing Ólafs Ólafs­sonar í Hæsta­rétti ekki áhrif á hæfi hans til stjórn­ar­setu hjá Sam­skipum Hold­ing B.V.

Hins vegar segir heim­ild­ar­maður Kjarn­ans, lög­mað­ur­ hjá lög­manns­stof­unni CMS í Hollandi, að hol­lenska dóms­mála­ráðu­neytið geti kraf­ist afsagnar stjórn­ar­manna með hlið­sjón af alvar­leika brots­ins sem þeir hafa verið sak­felldir fyr­ir. Hins vegar sé afar sjald­gæft að ráðu­neytið hafi frum­kvæði að slíku.

Kjarn­inn leit­aði í dag við­bragða hjá Sam­skipum á Íslandi við fang­els­is­dómnum yfir stærsta eig­anda skipa­fé­lags­ins. Pálmar Óli Magn­ús­son, for­stjóri Sam­skipa, gaf ekki ­kost á við­tali og í tölvu­pósti frá Önnu Guð­nýju Ara­dótt­ur, for­stöðu­manni Mark­aðs- og sam­skipta­deildar Sam­skipa, til Kjarn­ans seg­ir: „Við höfum ekk­ert að segja á þessu stigi máls­ins eins og fram kom í sam­tali okkar fyrr í dag.“

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None