„Efnahagslegur ómöguleiki“ fyrir Össur að vera á Íslandi

ossur-765x510.jpg
Auglýsing

For­stjóri Öss­urar segir að það sé  „á­kveð­inn efna­hags­legan ómögu­leiki í því fólg­inn að vera hér á Ísland­i,“ þrátt fyrir að hann von­ist til þess að félagið verði áfram hér á landi. Þetta sagði for­stjór­inn, Jón Sig­urðs­son, í sam­tali við Frétta­blaðið í dag. Hann segir það trufla félagið að vera um þriðj­ung hluta­bréfa félags­ins fastan á Íslandi innan gjald­eyr­is­hafta og þótt engar ákvarð­anir hafi verið teknar um að flytja úr landi sé aldrei hægt að vita hvenær þol­in­mæðin þrýt­ur. Þá segir Sveinn Sölva­son, fjár­mála­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, að sú stað­reynd að Össur sé íslenskt félag að upp­lagi kosti það pen­inga.

Stjórn­endur Öss­urar hafa áður talað á þessum nót­um. Í sam­tali við Kjarn­ann í fyrra sagði Jón að ráða­leysi stjórn­valda í efna­hags­mál­um, óút­fært plan um afnám fjár­magns­hafta og áform um að draga umsókn að Evr­ópu­sam­band­inu til baka hafi valdið félag­inu miklum áhyggj­um.

Þá hefur Niels Jac­ob­sen stjórn­ar­for­maður lýst yfir miklum áhyggjum af stöðu mála á Íslandi. Hann sagði til að mynda á síð­asta aðal­fundi félags­ins að aug­ljós­lega væri ekki hægt að reka alþjóð­legt fyr­ir­tæki á stað þar sem „gjald­mið­ill­inn væri varla til“.

Auglýsing

Eins og Kjarn­inn greindi frá í vik­unn­i hagn­að­ist Össur um 59 millj­ónir Banda­ríkja­dala í fyrra, eða sem nemur um sjö millj­örðum króna. Þetta er um 45 pró­sent aukn­ing frá árinu 2013. Þetta kom fram í til­kynn­ingu frá Öss­uri til kaup­hallar í vik­unni. Hagn­að­ur­inn nam um 12 pró­sent af sölu­tekjum félags­ins, sam­an­borið við um 9 pró­sent af sölu­tekjum árið 2013. Und­ir­liggj­andi rekstur styrkt­ist því umtals­vert milli ára, og flestar tölur í upp­gjör­inu benda til þess að árið 2014 hafi verið upp­sveifluár hjá Öss­uri miðað við árið á und­an.

Sölu­tekjur námu um 509 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða um 59 millj­örðum króna, og jókst salan um átján pró­sent milli ára. EBITDA (rekstra­hagn­aður fyrir  fjár­magns­kostn­að, skatta og afskrift­ir) nam um 104 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða um tólf millj­örðum króna. Þetta nemur um 20 pró­sent af sölu­tekj­um, en árið 2013 var EBITDA um átján pró­sent af sölu.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None