Eggert svarar Jóhanni: Hefði aldrei fjallað jafn mikið um Lekamálið

15003216120-c28ef99ddf-z.jpg
Auglýsing

Egg­ert Skúla­son, rit­stjóri DV, skrif­aði á Face­book-­síðu sína svar við yfir­lýs­ingu Jóhanns Páls Jóhanns­sonar þar sem Jóhann greindi frá því að hann hefði sagt upp störfum sem blaða­maður á DV. Egg­ert segir í svari sínu hafa haldið fund með starfs­mönnum DV eftir ráðn­ingu sína þar sem „allir gætu blásið og sagt sínar skoð­anir á mér [Egg­erti] og mál­efnum almennt.“

Jóhann Páll hafi hins vegar ekki verið við­staddur fund­inn. Egg­ert greinir svo frá því að hann hefði ekki fjallað um Leka­málið með sama hætti og DV gerði þegar Reynir Trausta­son var rit­stjóri. Jóhann Páll og Jón Bjarki Magn­ús­son leiddu lengi umfjöllun fjöl­miðla um Leka­málið og hlutu meðal ann­ars blaða­manna­verð­laun fyrir umfjöllun um mál­efni hæl­is­leit­enda.

Eggert Skúlason Egg­ert Skúla­son

Auglýsing

„Ég hefði aldrei birt allt það magn frétta sem blaðið og vef­mið­ill­inn gerði, það var ein­fald­lega ekki þörf á því,“ segir Egg­ert á Face­book. „Ég fylgd­ist með umfjöllun um þetta mál og enda­lausar fréttir hrein­lega rugl­uðu mig í rým­in­u.“ Hann bætir því svo við að DV muni halda áfram að fjalla um leka­málið og leiða það mál til lykta, þegar nýjar upp­lýs­ingar ber­ast.

Stöðu­upp­færslu Egg­erts má lesa hér að neð­an.

Stöðu­upp­færsla Egg­erts



Jóhann Páll blaða­maður á DV sendi mér upp­sagn­ar­bréf í morg­un. Hann er hætt­ur. Þetta eru fyrstu beinu sam­skiptin sem við Jóhann Páll eig­um. Pínu von­brigði því ég held að Jóhann Páll sé skarpur og öfl­ugur blaða­maður og hefði verið gaman að kynn­ast honum á þeim vett­vangi. En einn hlut verð ég að leið­rétta sem kom­inn er í opin­bera umfjöllun frá hon­um. Á mínum fyrsta rit­stjórn­ar­fundi á DV á föstu­dag, óskaði ég eftir því að í lok fundar myndum við (við­staddir blaða­menn og ég) eiga trún­að­ar­sam­tal þar sem allir gætu blásið og sagt sínar skoð­anir á mér og mál­efnum almennt. Eng­inn gerði athuga­semdir við þennan trún­að. Jóhann Páll var ekki á fund­in­um. Ég var spurður hvort ég hefði höndlað leka­málið með sama hætti og DV gerði. Ég svar­aði neit­andi. Ég útskýrði mál mitt með þeim hætti að ég hefði aldrei birt allt það magn frétta sem blaðið og vef­mið­ill­inn gerði, það var ein­fald­lega ekki þörf á því. Ég fylgd­ist með umfjöllun um þetta mál og enda­lausar fréttir hrein­lega rugl­uðu mig í rým­inu. Ég sagði að ég hefði birt allar fréttir sem hefðu haft að geyma við­bót­ar­upp­lýs­ing­ar, en frétta­flóðið fannst mér um tíma óþarf­lega mik­ið.

DV mun halda áfram að fjalla um leka­málið og leiða það mál til lykta, eftir því sem við komumst yfir upp­lýs­ing­ar. Því geta les­endur og blaða­menn DV treyst.

Mér finnst miður að trún­að­ar­sam­töl af rit­stjórn DV skuli hafa kom­ist í opin­bera umræðu. Ég ætla ekki að stæla við Jóhann Pál enda eng­inn starfs­maður nokk­urs fyr­ir­tækis stærri en fyr­ir­tækið sjálft, gildir þá einu hvort er um að ræða verð­launa­blaða­mann eða nýjan rit­stjóra.

DV verður dæmt af verkum sínum og við erum í óða önn að setja saman öfl­ugt helg­ar­blað sem verður gaman að fá við­brögð við. 


Já og bara eitt að lok­um. Veit ein­hver hver skráði mig í Fram­sókn­ar­flokk­inn?

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None