Einkaneyslan hefur ekki vaxið hraðar í níu ár

eimskip1.jpg
Auglýsing

Vöxtur einka­neyslu á Íslandi mæld­ist 4,5 pró­sent á fyrri árs­helm­ing­i 2015 sam­an­borið við fyrri árs­helm­ing 2014 og hefur ekki verið jafn mik­ill síðan 2006 eða í níu ár. Einka­neysla ber ásamt fjár­muna­myndun uppi kröft­ugan hag­vöxt á fyrri helm­ingi árs­ins. Þjóð­ar­út­gjöld, sem eru sam­tala einka­neyslu, fjár­muna­mynd­unar og sam­neyslu, juk­ust um 7,3 pró­sent á fyrstu sex mán­uðum árs­ins en alls var hag­vöxtur 5,2 pró­sent á tíma­bil­inu. Af því má ráða að fram­lag utan­rík­is­við­skipta hafi verið nei­kvætt en inn­flutn­ingur jókst um 13,6 pró­sent og útflutn­ingur um níu pró­sent.

Þetta kemur fram í grein­ingu hag­fræði­deildar Lands­bank­ans um nýjar tölur Hag­stof­unnar um hag­vöxt á fyrri helm­ingi árs­ins, en þær voru birtar fyrir helgi. Eins og grein­ing­ar­deild Íslands­banka benti á, og Kjarn­inn fjall­aði um, þá er hag­vöxt­ur­inn sá mesti síðan 2007.

Fram kemur í umfjöllun hag­fræði­deildar Lands­bank­ans að hluta af vexti inn­flutn­ings megi rekja til fjár­fest­inga­vara eins og skipa og flug­véla. „Inn­flutn­ingur óx aðeins hægar á öðrum fjórð­ungi en þeim fyrsta. Þannig nam aukn­ingin 14,4% á öðrum fjórð­ungi borið saman við sama tíma­bil í fyrra en hraði vaxt­ar­ins nam 17,4% á fyrsta fjórð­ungi. Engu að síður var vöxt­ur­inn veru­lega hraður á öðrum fjórð­ungi og rétt eins og í til­felli einka­neyslu þarf að leita allt aftur til árs­ins 2006 til að finna meiri vöxt á fyrri helm­ingi árs­ins. Hluti af þessum vexti inn­flutn­ings eru fjár­fest­ing­ar­vörur eins og skip og flug­vélar en inn­flutn­ingur flug­véla var 14,1 ma.kr. meiri en í fyrra og inn­flutn­ingur skipa 2,6 ma.kr. meiri og skýra þessir tveir liðir stóran hluta af inn­flutn­ings­vext­inum milli ára.“

Auglýsing

Þá er bent á að útflutn­ing­ur, sem jókst um 9 pró­sent á fyrri árs­helm­ingi borið saman við sama tíma­bil í fyrra, hafi ekki vaxið jafn mikið síðan árið 2008. „Vöxt­ur­inn er fremur bor­inn uppi af þjón­ustu­út­flutn­ingi en vöru­út­flutn­ingi og má rekja vöxt þjón­ustu­út­flutn­ings að miklu leyti til mik­illar aukn­ingar í komum ferða­manna hingað til lands en á fyrri árs­helm­ingi nam hann 29% borið saman við sama tíma­bil í fyrra. Auk­inn vöxt útflutn­ings á þessu ári má þó einnig skýra að hluta með grunn­á­hrifum en loðnu­ver­tíðin í fyrra reynd­ist óvenjuslæm og þurfti því ekki mikla loðnu­veiði á þessu ári til að auka útflutn­ing milli ára.“

Grein hag­fræði­deildar Lands­bank­ans má lesa í heild hér. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None