Einn af hverjum tíu vill að ríkið fjármagni Bændasamtökin

hotelsaga_vef.jpg
Auglýsing

Aðeins ell­efu pró­sent telja að rík­is­sjóður eigi að fjár­magna Bænda­sam­tökin að mestu eða öllu leyti. 71 pró­sent telja að ríkið eigi að litlu eða engu leyti að fjár­magna Bænda­sam­tök­in, 18 pró­sent telja að ríkið ætti að fjár­magna um það bil helm­ing starf­sem­inn­ar.

Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum nýrrar könn­unar sem Við­skipta­ráð lét gera á við­horfi almenn­ings til fjár­mögn­unar stofn­ana og emb­ætta á Íslandi.

Tals­verður munur er á svör­unum eftir því hvaða stjórn­mála­flokk við­kom­andi seg­ist myndu kjósa í dag. Stuðn­ings­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins voru lík­legri en aðrir til að vilja að ríkið fjár­magni Bænda­sam­tökin að miklu eða öllu leyti, eða 21,3 pró­sent. 14,2 pró­sent kjós­enda Bjartrar fram­tíðar sögð­ust vilja að ríkið fjár­magn­aði sam­tök­in, og 10 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Auglýsing

2,9 pró­sent kjós­enda Pírata vilja að ríkið fjár­magni Bænda­sam­tök­in, 4,5 pró­sent kjós­enda Sam­fylk­ing­ar­innar og 7,3 pró­sent kjós­enda VG.

Meiri­hluti á móti fjár­mögnun Þjóð­kirkju og Íslands­pósts



55,6 pró­sent telja að ríkið eigi ýmist ekki eða að mjög litlu leyti að fjár­magna Þjóð­kirkj­una. 17 pró­sent aðspurðra segja að ríkið eigi að fjár­magna kirkj­una til helm­inga en 27,4 pró­sent telja að Þjóð­kirkjan eigi að miklu eða öllu leyti að vera fjár­mögnuð af rík­is­sjóði. Mik­ill munur var á svörum eftir aldri, en þeir yngri eru síður hlynntir rík­is­fjár­mögnun kirkj­unnar en þeir eldri.

61,4 pró­sent aðspurðra eru á þeirri skoðun að ríkið eig­i að fjár­magna Íslands­póst að litlu eða engu leyti. 20,9 pró­sent telja að ríkið eigi að fjár­magna fyr­ir­tækið að mestu eða öllu leyti og 17,7 pró­sent telja að ríkið eigi að fjár­magna um helm­ing.

38,5 pró­sent aðspurðra í könn­un­inni segja að þeim finn­ist að ríkið eigi að fjár­magna Íbúða­lána­sjóð að öllu eða miklu leyti. 20,5 pró­sent telur að Íbúða­lána­sjóður eigi að vera fjár­magn­aður til helm­ings af rík­inu en 41 pró­sent vilja að ríkið hafi litla eða enga aðkomu að fjár­mögnun sjóðs­ins. Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Pírata eru síst hlynntir því að ríkið fjár­magni sjóð­inn, en kjós­endur Vinstri grænna telja fremur en aðrir að ríkið eigi að fjár­magna hann.

46% vilja fjár­magna björg­un­ar­sveitir



Þá var einnig spurt um fjár­mögnun björg­un­ar­sveita og Rauða kross­ins. 46 pró­sent aðspurðra segj­ast telja að ríkið eigi að fjár­magna björg­un­ar­sveit­anna að öllu eða miklu leyti. 35 pró­sent vilja að ríkið fjár­magni þær um helm­ing og 19 pró­sent vilja enga eða litla fjár­mögnun frá rík­inu.

Skoð­anir voru einnig skiptar þegar kom að fjár­mögnun Rauða kross­ins, en 26,2 pró­sent vilja að ríkið fjár­magni starf­semi hans að öllu eða miklu leyti. 36,9 pró­sent aðspurðra vilja að ríkið fjár­magni starf­sem­ina til helm­inga og 36,9 pró­sent vilja að ríkið komi að litlu eða engu leyti að fjár­mögn­un­inni.

Sjá má könn­un­ina í heild sinni hér. Úr­takið í könn­un­inni var rúm­lega 800 manns.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None