Eitt versta dæmi um valdníðslu í íslensku stjórnkerfi í lengri tíma

Þingmaður og formaður Viðreisnar gagnrýnir Lilju Alfreðsdóttur harðlega í færslu á Facebook og segir aðför þáverandi mennta- og menningarmálaráðherrans gegn einstaklingi, konu sem leitaði réttar síns, fordæmalausa.

Þorgerður gagnrýnir Lilju harðlega í færslu á Facebook.
Þorgerður gagnrýnir Lilju harðlega í færslu á Facebook.
Auglýsing

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, þing­maður og for­maður Við­reisn­ar, segir aðför Lilju Alfreðs­dótt­ur, þáver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, að Haf­dísi Helgu Ólafs­dótt­ur, sem sótt­ist eftir starfi ráðu­neyt­is­stjóra í mennta­mála­ráðu­neyt­inu þegar það var aug­lýst árið 2019, eitt versta dæmi um vald­níðslu í íslensku stjórn­kerfi í langan tíma. Lilja hafi verið „rass­skellt“ fyrir Hér­aðs­dómi. Þá segir Þor­gerður umræður um van­hæfi hafa farið fram við minna til­efni.

Kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála komst að þeirri nið­ur­stöðu 2020 að Lilja hefði brotið jafn­rétt­islög þegar hún skip­aði Pál Magn­ús­son í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra. Lilja ákvað að stefna kær­and­an­um, Haf­dísi Helgu, per­sónu­lega í nafni íslenska rík­is­ins til að fá úrskurð­inum hnekkt, tap­aði fyrir hér­aðs­dómi og ákvað að áfrýja til Lands­rétt­ar. Þar átti að taka málið fyrir í lok febr­úar en af því verður ekki. Ásmundur Einar Daða­son, sem tók við mála­rekstr­in­um, tók þá ákvörðun að semja um mála­lok og greiða Haf­dísi Helgu miska­bæt­ur.

Þor­gerður segir að þrátt fyrir allt gott að mál­inu sé lok­ið, enda hafi það verið „glóru­laust með öllu". Farm­sókn­ar­flokk­ur­inn ætti að biðja þjóð­ina, skatt­greið­endur og Haf­dísi Helgu afsök­unar á mál­inu og sjá sóma sinn í að taka almanna­hags­muni umfram sér­hags­muni og frænd­hygli.

Auglýsing

Ragnar Önund­ar­son skilur eftir athuga­semd við færslu Þor­gerðar þar sem hann spyr hvort slík stór­yrði séu við hæfi. Eng­inn sé „rass­skellt­ur“ fyrir dómi þó úrskurður dóms sé honum ekki í hag. Biður hann Þor­gerði að halda fúk­yrðum utan stjórn­valda, þau fái nóg pláss á sam­fé­lags­miðl­um.

Hér að neðan má nálg­ast færslu Þor­gerðar í heild sinni.

Aðför Lilju Daggar Alfreðs­dóttir að ein­stak­lingi, konu sem leit­aði réttar síns, er for­dæma­laus. Lilja er fyrsti...

Posted by Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir on Sat­ur­day, Febru­ary 26, 2022

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent