Ekkert sem bendir til mikils útflæðis - Frekar hætta á miklu innflæði

img_2895_raw_1807130243_10016410216_o.jpg
Auglýsing

Flest bendir til þess að erlendir fjár­festar séu að meta áætlun stjórn­valda og Seðla­banka Íslands um losun fjár­magns­hafta trú­verð­uga, og flestar hag­tölur benda til þess að hag­kerfið sé að rétta úr kútnum og til­búið fyrir þetta mik­il­væga skref. Í augna­blik­inu virð­ist meiri hætta á því mikið fjár­magn komi inn í land­ið, með þeim áhrifum að krónan geti styrkst mik­ið, fremur en að mikið flæði úr hag­kerf­inu af fjár­munum í kjöl­far los­un­ar.

Þetta segir Ásdís Krist­jáns­dóttir hag­fræð­ing­ur, og for­stöðu­maður efna­hags­svið Sam­taka atvinnu­lífs­ins, aðspurð um hvort krónan geti veikst eða styrkst, í kjöl­far þess að áætlun um losun fjár­magns­hafta verður hrint í fram­kvæmd.

Ásdís tjáir sig um þetta álita­efni í áskrift­ar­frétta­þjón­ustu Kjarn­ans á ensku, viku­legu frétta­bréfi sem ber nafnið The Weekly Report, þar sem fjallað er um stöðu mála hér á landi, einkum í við­skipt­um, efna­hags­málum og stjórn­mál­um. Frétta­þjón­ustan er meðal ann­ars sniðin að þörfum fjár­festa, stofn­anna, sendi­ráða, íslenskra og erlendra fyr­ir­tækja, grein­ing­ar­að­ila, hags­muna­sam­taka og þeirra sem áhuga og hag hafa af því að fylgj­ast með gangi mála hér á landi.

Auglýsing

Slitabú föllnu bank­anna þriggja munu sam­tals greiða 334 millj­arða króna í stöð­ug­leika­fram­lag til rík­is­ins. Á fundi 2. októ­ber síð­ast­lið­inn ákváðu ­kröfu­hafar í gamla Lands­bank­anum að greiða stöð­ug­leika­fram­lag, sem verður um 14,4 millj­arðar króna.

Á fundum í sept­em­ber sam­þykktu kröfu­hafar Glitnis að greiða um 200 millj­arða króna í stöð­ug­leika­fram­lag og kröfu­hafar Kaup­þings að greiða um 120 millj­arða. Lægra fram­lag Lands­bank­ans til rík­is­sjóðs en ann­arra slita­búa skýrist fyrst og fremst af því að krónu­eign bús­ins er tals­vert lægra en hinna tveggja.

Vandinn sem áætlun um losun hafta á að taka á, eins og honum var lýst af stjórnvöldum í kynningu. Vand­inn sem áætlun um losun hafta á að taka á, eins og honum var lýst af stjórn­völdum í kynn­ingu. Eins og þarna sést, var reiknað með hærri fjár­háðum í stöð­ug­leika­fram­lag, en raunin mun verða.

Þessar ákvarð­anir eru liður í áætlun um losun hafta, en auk þess er gert ráð fyrir að snjó­hengja aflandskróna verði minnkuð eða henni eytt, með upp­boð­um, sem Seðla­banki Íslands ann­ast. Mark­miðið með þeirri aðgerð er að minnka þrýst­ing á krón­una. Loka­mark­miðið er síðan að losa um eða afnema fjár­magnas­höft, sem hafa verið laga­skylda frá því í nóv­em­ber 2008, þegar þeim var komið á til þess að koma á stöð­ug­leika á gjald­eyr­is­mark­aði og hindra stjórn­laust fall íslensku krón­unnar eftir hrun banka­kerf­is­ins, dag­ana 7. til 9. októ­ber 2008.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None