Ekki hægt að horfa upp á „stjórnlausan markaðinn“ ráðskast með lífsviðurværi fólks

Flokkur fólksins vill skoða leiguþak sem tímabundna ráðstöfun sem svar við húsnæðisvandanum. „Eitthvað verðum við að gera,“ segir varaþingmaður flokksins.

Helga Þórðardóttir varaþingmaður Flokks fólksins.
Helga Þórðardóttir varaþingmaður Flokks fólksins.
Auglýsing

Vandi leigj­enda og ungra kaup­enda getur ekki beð­ið, að mati Helgu Þórð­ar­dóttur vara­þing­manns Flokks fólks­ins. Alþingi verði að grípa inn í þessa þróun strax með sér­tækum úrræð­um.

Þetta kom fram í máli Helgu undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni.

Hún sagði að hús­næð­is­mál á Íslandi væru stór mál og að bráða­vandi væri fyrir höndum vegna fram­boðs­skorts og verð­hækk­ana. „Öll þurfum við þak yfir höf­uðið og það eru sjálf­sögð mann­rétt­indi að hafa heim­il­i.“

Auglýsing

Helga benti á að sveit­ar­fé­lög og stjórn­völd hefðu und­an­farin ár van­metið íbúða­þörf svo um mun­ar. „Það hefur valdið gíf­ur­legri hækkun á íbúða­verði og húsa­leigu. Talið er að hús­næð­is­verð hafi hækkað um 22 pró­sent á síð­ast­liðnum 12 mán­uð­um. Afleið­ingin er sú að ungt fólk sem er að kaupa sína fyrstu íbúð er skuld­sett upp í rjáfur og hafa mörg fengið aðstoð for­eldra til að fjár­magna kaup­in. Skuld­sett fólk hefur ekki kaup­mátt til að efla hag­vöxt. Það sama gildir um leigj­end­ur.

Meira en fjórð­ungur leigj­enda er að greiða meira en 40 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í leigu. Það má vel vera að sam­kvæmt ein­hverjum skýrslum sé ástandið gott hjá með­al­tal­inu en með­al­töl verða ekki í ask­ana lát­in,“ sagði hún.

Vand­inn ekki leystur á einum degi

Helga telur að „við verðum að hætta að sam­þykkja fátækt með því að nota með­al­töl. Við verðum að við­ur­kenna í sam­ein­ingu að á meðan fátækt er til staðar hefur okkur mis­tek­ist og við verðum að gera bet­ur.“

Þá sagði hún jafn­framt að hús­næð­is­vand­inn yrði ekki leystur á einum degi því að það tæki nokkur ár að byggja nýjar íbúð­ir. „Vandi leigj­enda og ungra kaup­enda getur ekki beð­ið. Alþingi verður að grípa inn í þessa þróun strax með sér­tækum úrræð­um. Við í Flokki fólks­ins viljum skoða leigu­þak og þá sem tíma­bundna ráð­stöf­un. Við þurfum líka að aðstoða sér­stak­lega þá sem eru nýkomnir inn á íbúða­mark­að­inn. Eitt­hvað verðum við að gera. Við getum ekki horft upp á stjórn­lausan mark­að­inn ráðskast með lífs­við­ur­væri fjöl­skyldn­anna í land­in­u.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent