Ekki víðtækur stuðningur innan Sjálfstæðisflokks við húsnæðisfrumvörp

16828751532_f775e49c59_z.jpg
Auglýsing

Ekki er víð­tækur stuðn­ingur innan þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins við hús­næð­is­bóta­frum­varp og frum­varp um félags­legt hús­næð­is­kerfi, sam­kvæmt því sem fram kemur í Morg­un­blað­inu í dag. Áður hafði fjár­laga­skrif­stofa fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins gagn­rýnt fyrr­nefnda frum­varp­ið. Sam­kvæmt blað­inu þurfa frum­vörpin að "taka veru­legum breyt­ing­um" til að þing­menn flokks­ins styðji þau.

Eygló Harð­ar­dótt­ir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, segir í Morg­un­blað­inu að rík­is­stjórnin hafi lýst því yfir í tengslum við kjara­samn­inga að hún hefði í hyggju að leggja þetta meðal ann­ars til og að sam­þykkt hafi verið í rík­is­stjórn að leggja fram frum­vörp­in. "Að­ilar vinnu­mark­að­ar­ins líta svo á að þessar breyt­ingar á hús­næð­is­kerf­inu séu hluti af sam­komu­lagi þeirra og for­senda fyrir gerð kjara­samn­inga. Ég hef ekki heyrt neitt annað frá for­ystu Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en að menn hafi í hyggju að standa við það, enda stóð öll rík­is­stjórnin að þess­ari yfir­lýs­ing­u."

Vinna við þessi frum­vörp, og önnur frum­vörp tengd breyt­ingum á hús­næð­is­kerf­inu, mun halda áfram í sum­ar. Eygló von­ast til þess að hægt verði að koma fram með málin á fyrstu dögum haust­þings.

Auglýsing

Áttu að ganga fram í vor, en gerðu það ekki



Kjarn­inn greindi frá því í síð­ustu viku að ekk­ert af fjórum hús­næð­is­frum­vörpum Eyglóar hafi náð fram að ganga á þingi í vet­ur, þvert á yfir­lýs­ing­ar. Eygló hafði talað um það í vetur að hús­næð­is­málin yrði að klára á þessu þingi og að jafn­vel ætti að halda sum­ar­þing til þess að klára þau. Jafn­vel þótt þingið hafi starfað langt fram á sumar komust málin ekki úr nefnd.

Í þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar voru boðuð fjögur frum­vörp um hús­næð­is­mál á liðnum vetri. Það voru frum­varp til laga um hús­næð­is­bæt­ur, um hús­næð­is­sam­vinnu­fé­lög, um breyt­ingu á húsa­leigu­lögum og um hús­næð­is­mál, en hið síð­ast­nefnda fjallar um stofn­styrki til félags­legs leigu­hús­næð­is. Breyt­ingar á húsa­leigu­lögum og frum­varp um hús­næð­is­sam­vinnu­fé­lög komu inn í þingið 1. apr­íl. Hins tvö frum­vörpin létu hins vegar á sér standa, eða þar til frum­varp um hús­næð­is­bætur kom inn í þingið þann 8. júní. Þá var orðið ljóst að frum­varp um stofn­styrki yrði ekki lagt fram fyrr en í haust. Þrjú frum­varpanna komu sem sagt fram, og þau voru öll til umfjöll­unar í vel­ferð­ar­nefnd þegar þingið lauk störf­um. Því er ljóst að leggja þarf þau fram aftur á haust­þing­inu.

Voru hluti af sátt á vinnu­mark­aði



Þann 28. maí kynnti rík­is­stjórnin sínar aðgerðir til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga. Þar á meðal var yfir­lýs­ing rík­is­stjórn­ar­innar um hús­næð­is­mál. Þar var meðal ann­ars að finna lof­orð um tvö þess­arra mál, stofn­styrki til upp­bygg­ingar félags­legs leigu­í­búða­kerfis og nýtt hús­næð­is­bóta­kerfi. Í yfir­lýs­ing­unni kemur fram að frum­varpið um hús­næð­is­bætur ætti að að koma fyrir vor­þing í ár og önnur frum­vörp á haust­þingi, þau ætti að afgreiða fyrir ára­mót.

Þann 8. júní var svo frum­varpið um hús­næð­is­bætur lagt fram á þing­inu, þrátt fyrir að umsögn fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins um það hefði sýnt að ráðu­neytið hefði miklar efa­semdir um það. Meðal ann­ars var sagt að sam­kvæmt grein­ingum myndi nið­ur­greiðsla húsa­leigu verða hlut­falls­lega meiri eftir því sem tekjur heim­il­is­ins væru hærri. Það er í and­stöðu við yfir­lýst mark­mið frum­varps­ins, sem er að auka stuðn­ing við efna­m­inna fólk.

Þá sagði fjár­mála­ráðu­neytið að auk­inn rík­is­stuðn­ingur af þessu tagi muni að öllum lík­indum leiða til þess að leigu­verð hækki og það muni hagn­ast leigu­söl­um. Þá munu nýju bæt­urnar ekki koma öryrkjum og öldruðum eins vel og þeim sem eru í námi eða vinnu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None