Ellefu fá riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu í dag

org2.jpg
Auglýsing

Ólafur Ragnar Gríms­son, for­seti Íslands, sæmdi í dag ell­efu Íslend­inga ridd­ara­krossi hinnar íslensku fálka­orðu. Orðu­veit­ingin fór fram á Bessa­stöð­um. Á meðal þeirra sem hlutu orð­una við hátíð­lega athöfn í dag var Magnús Pét­urs­son rikis­sátt­ar­semj­ari og Silja Aðal­steins­dóttir rit­höf­und­ur.

Þeir ell­efu sem fengu orð­una að þessu sinni voru:



  • Dýrfinna H. K. Sig­ur­jóns­dóttir ljós­móð­ir, Reykja­vík, ridd­ara­kross fyrir störf á vett­vangi heilsu­gæslu og umönn­unar


  • Her­dís Storgaard hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur, Reykja­vík, ridd­ara­kross ­fyrir braut­ryðj­anda­störf að slysa­for­vörnum barna


  • Inga Þórs­dóttir pró­fessor og for­seti Heil­brigð­is­vís­inda­sviðs Há­skóla Íslands, Sel­tjarn­ar­nesi, ridd­ara­kross fyrir fram­lag til­ ­vís­inda og rann­sókna


  • Magnús Pét­urson rík­is­átta­semj­ari og fyrr­ver­and­i ráðu­neyti­stjóri, Reykja­vík, ridd­ara­kross fyrir störf í opin­ber­a þágu


  • Páll Ein­ars­son pró­fessor í jarð­eðl­is­fræði, Reykja­vík, ridd­ara­kross ­fyrir rann­sóknir og fræðslu á sviði íslenskra jarð­vís­inda


  • Páll Guð­munds­son mynd­list­ar­mað­ur, Húsa­felli, ridd­ara­kross ­fyrir fram­lag til íslenskrar mynd­listar


  • Sig­rún Huld Hrafns­dóttir ólymp­íu­met­hafi fatl­aðra og mynd­list­ar­mað­ur, Reykja­vík, ridd­ara­kross fyrir afrek og fram­göngu á vett­vangi íþrótta fatl­aðra


  • Sig­urður Hall­dórs­son hér­aðs­lækn­ir, Kópa­skeri, ridd­ara­kross fyr­ir­ lækn­is­þjón­ustu á lands­bygð­inni


  • Sig­urður Han­sen bóndi, Kringlu­mýri í Skaga­firði, ridd­ara­kross ­fyrir fram­lag til kynn­ingar á sögu og arf­leifð Sturl­ung­aldar


  • Silja Aðal­steins­dóttir bók­mennta­fræð­ing­ur, Reykja­vík­, ­ridd­ara­kross fyrir fram­lag til íslenskrar menn­ingar og bók­mennta


  • Þor­valdur Jóhans­son fyr­ver­andi bæj­ar­stjóri og skóla­stjóri, Seyð­is­firði, ridd­ara­kross fyrir fram­lag til mennta og fram­fara í heima­byggð




Fimm orðu­stig



Sex manns sitja í orðu­nefnd fálka­orð­unn­ar. Guðni Ágústs­son, fyrrum for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, er for­maður nefnd­ar­inn­ar. Aðrir sem í henni sitja eru Ell­ert B. Schram, Rakel Olsen, Ólafur Egils­son, Þór­unn Sig­urð­ar­dóttir og Örn­ólfur Thors­son. Stór­kross­inn er þriðja efsta stig fálka­orð­unn­ar.

Orðu­stig Hinnar íslensku fálka­orðu eru fimm tals­ins. Fyrsta stig orð­unnar er ridd­ara­kross­inn og eru flestir orðu­þegar sæmdir hon­um. Annað stig er stór­ridd­ara­kross, þriðja stig stór­ridd­ara­kross með stjörnu og fjórða stig er stór­kross. Æðsta stig fálka­orð­unnar er keðja ásamt stór­kross­stjörnu en hana bera ein­ungis þjóð­höfð­ingj­ar.

Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra var sæmdur stór­krossi hinnar íslensku fálka­orðu þann 13. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Raunar hafa allir for­sæt­is­ráð­herrar lýð­veld­is­sög­unnar verið sæmdir fálka­orðu, nema fjórir. Þeir eru Her­mann Jón­as­son, Bene­dikt Grön­dal, Stein­grímur Her­mann­son og Jóhanna Sig­urð­ar­dótt­ir, sem hafn­aði því að fá stór­kross þegar hún sat sem for­sæt­is­ráð­herra á síð­asta kjör­tíma­bili.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None