Elliði Vignisson: Ömurlegt að stjórnmálamenn vegi að sjávarútvegi

vestmannaeyjar.jpg
Auglýsing

Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri í Vest­manna­eyjum og odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur þung orð um það hvernig Gunnar Bragi Sveins­son, utan­rík­is­ráð­herra, hefur höndlað við­skipta­bann Rússa á íslensk mat­væli. Hann skrif­aði pistil á vef­síðu sína ellið­i.is í morgun og segir fram­komu ráð­herr­ans til skamm­ar.

Í Vest­manna­eyjum starfa tvær stærstu vinnslu­stöðvar fyrir upp­sjáv­ar­fisk á land­inu; Ísfé­lagið og Vinnslu­stöðin eiga mikla hags­muni undir í vi­skipta­banni Rússa. Í sam­an­tekt RÚV á hvar bannið kemur verst niður virð­ast Vest­manna­eyjar og sveit­ar­fé­lög á Aust­ur­landi verst leik­in.

Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri í Vest­manna­eyj­u­m.

Auglýsing

Elliði byrjar á að taka dæmi af Gunn­þóri Ingv­ars­syni, fram­kvæmda­stjóra Síld­ar­vinnsl­unn­ar. Hjá honum starfa 270 manns sem Elliði segir nú eiga hættu á að missa starfs sitt. Gunn­þór hefur þess vegna brugð­ist við og gagn­rýnt stjórn­völd fyrir það hvernig þau héldu á mál­inu.

„Í stað þess að sýna því skiln­ing að orð og gjörðir í utan­rík­is­málum hafa afleið­ingar fyrir íbúa þess lands og fyr­ir­tæki og mæta þannig gagn­rýni af still­ingu brást Gunnar Bragi hinn versti við,“ skrif­aði Elliði á vef­síðu sína. „Stein­inn tók úr þegar utan­rík­is­ráð­herr­ann og þing­mað­ur­inn gekk svo langt í við­tals­þætt­inum „Á Sprengisandi“ að við­hafa lítt duldar hót­anir um að ef Gunn­þór hefði ekki vit á að halda sig til hlés — halda kjafti — þá yrði fisk­veiðistjón­un­ar­kerfið end­ur­skoð­að.“

„Ef Gunn­þór tjáir skoð­anir sem ekki eru stjórn­mála­mann­inum þókn­an­legar megi allt eins búast við því að eignir hans og tengdra aðila verði gerðar upp­tæk­ar. Þessar alvar­legu hót­anir krydd­aði ráð­herr­ann svo með brigslum um arð­greiðslur og oflát­ungs­hátt Síld­ar­vinnsl­unn­ar,“ skrifar Elliði enn frem­ur. „Ég vil trúa því að ráð­herran hafi hér hlaupið á sig og þetta til­vik sé ekki dæmi­gert fyrir hann. Eftir stendur að fram­koman að þessu sinni var honum ekki sam­boðin heldur til skamm­ar.“

Gunnar Bragi hefur sagt að hann ætli ekki að leggja til að þátt­taka í við­skipta­þving­unum banda­manna gegn Rúss­landi verði end­ur­skoð­uð. „Það byggir á prinsippi og miklu stærra hags­muna­mati en þetta, í raun­inni, þó hér séu auð­vitað miklir hags­mun­ir,“ sagði Gunnar Bragi í sam­tali við Kjarn­ann. Á Sprengisandi á sunnu­dag sagði ráð­herr­ann svo að hann velti fyrir sér hvort það séu bestu menn­irnir til að fara með auð­lind­ina ef þeir taki eig­in­hags­muni fram yfir heild­ar­hags­muni.

Undir milli­fyr­ir­sögn­inni „Öm­ur­legt“ skrifar bæj­ar­stjór­inn svo að það sé „öm­ur­legt fyrir okkur sem eigum allt undir sjáv­ar­út­vegi að stjórn­mála­menn skuli ítrekað leyfa sér að vega að atvinnu­grein­inn­i.“ Og: „Rétt við­brögð ráð­herra hefðu verið að útskýra og rétt­læta ákvörðun sína en ekki að við­hafa hót­anir og brigsl­an­ir.  Að nálg­ast málið mál­efna­lega en ekki að reyna að þagga niður í gagn­rýn­is­rödd­um. Slíkt er ein­göngu merki um vondan mál­stað.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None