Enn engin niðurstaða um meint samkeppnisbrot Mjólkursamsölunnar

15535315495_97cbda6cae_z.jpg
Auglýsing

Enn liggur ekki fyrir nið­ur­staða í rann­sókn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á meintum sam­keppn­islaga­brotum Mjólk­ur­sam­söl­unn­ar ­gegn mjólk­ur­bú­inu Kú. Áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála vís­aði mál­inu til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins í des­em­ber, og eft­ir­litið hét því þá að hraða rann­sókn sinni.

Félag atvinnu­rek­enda hefur sent Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu erindi vegna máls­ins og ítrekað fyrri áskorun sýna um að mál­inu verð­i hraðað eins og hægt er. Ítrek­unin var send vegna ákvörð­unar verð­lags­nefndar búvara um hækkun á verði hrá­mjólkur til úrvinnslu. Mjólk­ur­búið Kú telur þá ákvörðun sér­stak­lega til þess fallna að ýta keppi­nauti MS af mark­aði og mun kæra ákvörð­un­ina til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins líka.

Auglýsing


„Þetta er langur tími. Við höfum lagt fram til­lögur um hvernig megi gera þetta sam­keppn­is­rétt­ar­kerfi skil­virkara, því að sér­stak­lega fyrir svona lítil fyr­ir­tæki sem eiga í höggi við stóra keppi­nauta með miklar bjargir, sem hafa efni á færum lög­fræð­ingum og svo fram­veg­is, þá bara er mjög erfitt að bíða svona lengi eftir nið­ur­stöðum í máli. Sum smærri fyr­ir­tæki bara hafa ekki úthald í það, þá vinnur kerfið gegn til­gangi sín­um,“ segir Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri FA, í sam­tali við Kjarn­ann. „Þetta gerir smærri keppi­nautum rosa­lega erfitt fyr­ir.“



For­saga máls­ins er sú að Sam­keppn­is­eft­ir­litið sektaði MS um 370 millj­ónir króna fyrir sam­keppn­is­brot gegn mjólk­ur­bú­inu Kú í sept­em­ber í fyrra. MS hefði mis­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína með því að selja sam­keppn­is­að­ilum Kú, sem eru tengdir MS, hrá­mjólk á 17 pró­sent lægra verði en því sem Kú bauðst.



Áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála komst að þeirri nið­ur­stöðu í des­em­ber að fella yrði úrskurð­inn úr gildi, vegna þess að MS upp­lýsti ekki eft­ir­litið um samn­ing á milli fyr­ir­tæk­is­ins og Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, sem á hlut í MS og er einn þeirra aðila sem fékk hrá­mjólk á lægra verði. MS lagði samn­ing­inn ekki fram fyrr en við mál­flutn­ing fyrir áfrýj­un­ar­nefnd­inni, þrátt fyrir að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefði ítrekað beðið um skýr­ingar og gögn frá fyr­ir­tæk­inu.



Áfrýj­un­ar­nefndin taldi að henni væri því skylt að vísa mál­inu aftur til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Áfrýj­un­ar­nefndin tók enga efn­is­lega afstöðu til máls­ins heldur taldi að ekki hefðu komið fram full­næg­andi skýr­ingar af hálfu MS á fram­kvæmd samn­ings­ins fyrir nefnd­inni. Þess vegna ætti Sam­keppn­is­eft­ir­litið að rann­saka málið aft­ur, með hlið­sjón af umræddum samn­ingi, og kom­ast að nýrri nið­ur­stöðu um hvort MS hefði brotið sam­keppn­is­lög.



Þetta var í des­em­ber, og í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans sagði Páll Gunnar Páls­son, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, að eft­ir­litið myndi leggja áherslu á að hraða rann­sókn sinni. „Fyr­ir­fram er ekki hægt að full­yrða hvenær henni [rann­sókn­inni] lýk­ur, enda geta ýmis atvik hafa áhrif á með­ferð máls­ins, þar á meðal umfang og eðli þeirra upp­lýs­inga sem aflað verður og við­brögð aðila,“ sagði hann þá.



Kjarn­inn hefur sent fyr­ir­spurn til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um það hvernig mál­inu vindur fram og hvað veldur því að rann­sókn­inni er ekki lok­ið. Svar hefur ekki borist.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None