Er hægt að grafa stríðsöxina og ná þverpólitískri sátt um lausn í kjaradeilunni?

14097534298_f246440b68_z.jpg
Auglýsing

Sú staða sem er komin upp í kjara­deilum verður alvar­legri og alvar­legri með hverjum deg­in­um. Stjórn­endur á Lands­spít­al­anum greina frá því að verk­föll geti raun­veru­lega leitt til dauða sjúk­linga, skortur er á nauð­synja­vöru, þjón­ustu­skerð­ing innan ferða­þjón­ustu gerir það að verkum að tekjur vegna ferða­manna skila sér í minna mæli en þær ættu að gera, það er ekki hægt að gifta sig borg­ara­lega, skilja, þing­lýsa íbúða­kaup­samn­ingum eða fá til­skilin leyfi fyrir stórum partýum og ­út­flutn­ings­verð­mæti upp á millj­arða króna eru í stór­hættu. Og verk­föllin eru ekki enn byrjuð af fullum þunga. Eftir nokkrar vikur eru allar líkur á að tug­þús­undir verði í verk­falli og að íslenskt vel­ferð­ar­kerfi og efna­hags­líf lamist. Þetta er raun­veru­leik­inn.

Stjórn­völd hafa ekki viljað stíga inn í þessar deilur af fullum krafti. Miðað við afleið­ing­arnar sem blasa við, sem gæti tekið okkur langan tíma að vinda ofan af, er ljóst að sú afstaða gengur ekki degi leng­ur. Björn Valur Gísla­son, vara­for­maður Vinstri grænna, sagði í Viku­lok­unum á Rás 2 í gær að stjórn­ar­flokk­arnir þyrftu að játa van­mátt sinn gagn­vart ástand­inu og bjóða stjórn­ar­and­stöð­unni með í að reyna að höggva á hnút­inn. Ef allir stjórn­mála­flokkar á Alþingi myndu vinna saman að lausn sem lögð yrði fram til að leysa málið þá væri það sann­ar­lega rós í hnappa­gat þeirra allra.

En það skiptir máli að hafa hraðar hendur og til þess að dæmið gangi upp þarf að ýta öllum öðrum deilu­málum til hliðar á meðan að þetta risa­mál er tæklað af krafti. Það þýðir að fresta þarf umræðum um losun hafta, mak­ríl­kvóta, hin pikk­föstu hús­næð­is­frum­vörp og allt hitt sem stjórn­mála­menn greinir á um í dag á meðan að stóra lausnin á kjara­deil­unum er fund­in.

Auglýsing

Þá þarf að skilja her­klæðin eftir fyrir utan Alþingi tíma­bund­ið. Stóra spurn­ingin er, geta þeir stjórn­mála­menn sem í dag skipa þing­sæt­in, hvort sem er í stjórn eða stjórn­ar­and­stöðu, gert það?

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None