Er Sigmundur Davíð kylfulaus?

9951303834-6436720f14-z.jpg
Auglýsing

Hag­fræð­ing­arnir Dr. Ásgeir Jóns­son og Dr. Hersir Sig­ur­geirs­son segja í skýrslu sem birt var í gær að vilji ráð­gjafa rík­is­stjórn­ar­innar við að reyna að fara hina svoköll­uðu gjald­þrota­leið við upp­gjör slita­búa föllnu bank­anna, þar sem allar kröfur yrðu greiddar út í íslenskum krón­um, hafi tafið hafta­af­náms­vinnu um rúm­lega ár. Sú leið hafi loks verið dæmd úr leik með dómi Hæsta­réttar hinn 10. nóv­em­ber 2014 í máli Kaup­þings hf. gegn Ares­bank S.A. Þar kom skýrt fram að þó að allar kröfur íslenskra þrota­búa væru reikn­aðar í lög­eyri lands­ins stæðu engar skyldur til þess að greiða þessar sömu kröfur út í krón­um.

Að mati Ásgeirs og Hersis virð­ist dómur Hæsta­réttar hafa komið fyr­ir­tætl­unum stjórn­valda í upp­nám og „strax í kjöl­farið virð­ast stjórn­völd hafa horfið til fyrri áforma um lausn vand­ans. Raunar liðu aðeins nokkrir dagar frá því að Hæsti­réttur mold­setti gjald­þrota­leið­ina að fregnir bár­ust af því að aftur væri verið að huga að þeirri leið er sett var fram í áætlun Seðla­bank­ans um losun gjald­eyr­is­hafta frá því í mars árið 2011.“

En hvaðan kom þessi hug­mynd sem eytt var svona miklum tíma í að óþörfu?

Auglýsing

Í frægu við­tali við Frétta­blaðið þann 9. mars 2013 sagði þá verð­andi for­sæt­is­ráð­herra lands­ins, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, eft­ir­far­andi um upp­gjör slita­búa föllnu bank­anna: „Í slíkum við­ræðum þurfa menn bæði að hafa gul­rót og kylfu. Það þarf að skapa hvata en menn þurfa líka að standa frammi fyrir því að ef þeir séu ekki til­búnir til að spila með verði það þeim ekki til hags­bóta. Eins og lögin eru núna í stakk búin á að greiða úr þrota­búum íslenskra fyr­ir­tækja í íslenskum krón­um. Seðla­bank­inn gæti því í raun inn­kallað gjald­eyr­inn, í krafti gjald­eyr­is­haft­anna, og greitt út í íslenskum krónum sem menn sætu þá fastir með hér.“

Gjald­þrota­leiðin var því, sam­kvæmt þessu, hin fræga „kylfa" Sig­mundar Dav­íðs. Hún virð­ist nú horf­in.

Von er á frum­vörpum um skref í átt að losun hafta í lok þess­arar viku eða byrjun þeirrar næst­u. Er for­sæt­is­ráð­herr­ann að fara inn í það ferli ein­ungis vopn­aður gul­rót?

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None