Eru sumir merkilegri en aðrir?

15416922713-1ded9deb5a-z.jpg
Auglýsing

Það var hálf­gerður sorg­ar­dagur í gær, þegar Alþingi sam­þykkti lög á verk­föll BHM og Félags íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga. Verk­falls­rétt­ur­inn er enda næstum heil­agur réttur stétt­ar­fé­laga til að knýja á um betri kjör til handa sínum félags­mönn­um. Laga­setn­ingin er hins vegar skilj­an­leg í ljósi þess að kjara­við­ræður rík­is­ins við heil­brigð­is­starfs­menn sína voru í óleys­an­legum hnút, og kjara­deilan farin að bitna á því fólki sem síst skyldi.

Því skal þó til haga haldið að það var ríkið sem samdi við lækna um veru­legar launa­hækk­an­ir, eftir að læknar höfðu sömu­leiðis haldið heil­brigð­is­kerf­inu í gísl­ingu til að ná fram sínum kjara­bót­um. Lækna­samn­ing­arnir leiddu til stöð­unnar sem uppi er.

Með fullri virð­ingu fyrir lækn­um, þá eru engu að síður vís­bend­ingar um að ríkið meti ekki aðra starfs­menn heil­brigð­is­kerf­is­ins til jafns við þá. Óháð því hvort kröfur heil­brigð­is­starfs­manna rík­is­ins eru raun­hæf­ar, því lækna­samn­ing­arnir voru það ekki í efna­hags­legu til­liti, þá ber rík­inu að leggja sig jafn mikið fram við að ná samn­ingum við fleiri heil­brigð­is­starfs­menn en bara lækna. Það er úti­lokað að sátt náist um að það sé gert mun betur við suma en aðra.

Auglýsing

Á Íslandi starfar fram­úr­skar­andi heil­brigð­is­starfs­fólk á heims­vísu, sem er eft­ir­sótt fyrir utan land­stein­ana. Heil­brigð­is­kerfið á Íslandi snýst ekki bara um lækna, því þeir gætu lítið gert einir og sér. Heil­brigð­is­kerfið er eins og gang­verk í klukku, þar sem hvert tann­hjól skiptir sköpum svo að kerfið virki eins og það á að virka.

Hvað ger­ist nú skal ósagt lát­ið, en sorg­leg­asta nið­ur­staðan væri auð­vitað sú ef við missum mikið af mennt­uðu fólki úr landi. Því miður eru dæmi þess, að slíkur land­flótti sé nú þegar haf­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None