ESA hefur rannsókn á því hvort fjármögnun Íslandsbanka og Arion banka sé ólögmæt

esa.jpg
Auglýsing

Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) hefur hafið rann­sókn á fjár­mögnun Seðla­banka Íslands á Íslands­banka og Arion banka. Stofn­unin rann­sakar hvort mögu­lega hafi verið um að ræða ólög­mæta rík­is­að­stoð við fjár­mála­fyr­ir­tækin tvö þegar Seðla­bank­inn breytti skamm­tíma­fjár­mögnun sem veitt hafði verið fyr­ir­renn­urum þeirra, Glitni og Arion banka, í lang­tíma­fjár­mögn­un. Til skoð­unar verður hvort mark­aðs­kjör hafi verið á þeirri fjár­mögn­un. Þetta kemur fram í tilkynn­ingu frá ESA sem birt var á heima­síðu stofn­un­ar­innar í dag.

Skamm­tíma­fjár­mögnun breytt í lang­tíma­fjár­mögnun



Eftir neyð­ar­laga­setn­ing­una voru eignir og skuldir fluttar með handafli yfir til nýju bank­anna þriggja. Á meðal þeirra skulda sem fluttar voru yfir með þeim hætti voru lána­samn­ingar við Seðla­banka Íslands. Þeir samn­ingar voru til skamms tíma og mikil veð stóðu á bak­við þá. Ljóst var að nýju bank­arnir gátu ekki greitt lánin á þeim gjald­dögum sem til stóð án þess að það myndi hafa alvar­legar afleið­ingar á lausa­fjár­stöðu þeirra. Þess vegna voru lán sem Seðla­bank­inn hafði veitt Glitni og Kaup­þingi, en færð höfðu verið yfir til Íslands­banka og Arion banka þegar þeir bankar voru búnir til á grunni hinna, end­ur­skipu­lögð í sept­em­ber og nóv­em­ber 2009. Þar var þeim breytt í lang­tíma­lán.

Ólög­mæt rík­is­að­stoð eða hámörkun eigna?



Seðla­bank­inn heldur því fram, sam­kvæmt frétt á heima­síðu ESA, að þetta hafi verið gert til að hann gæti hámarkað end­ur­heimtir sín­ar. Þar með hafi Seðla­bank­inn hagað sér eins og einka­fjár­festir sem ætti kröfu á slita­bú. ESA hefur hins vegar efa­semdir um að þau kjör sem samið var um séu í sam­ræmi við mark­aðs­kjör á þeim tíma. Ef þau hafi ekki verið það þá sé um ólög­mæta rík­is­að­stoð að ræða sem sé í and­stöðu við EES-­samn­ing­inn.  Ekki er til­greint í frétt ESA hvort það séu vaxta­kjörin sem buð­ust eða lengd nýju lán­anna sem eft­ir­lits­stofn­unin telur að geti mögu­lega verið ólög­mætt.

Í frétt á heima­síðu ESA er tekið fram að í ákvörð­un­inni um að opna form­lega rann­sókn á fjár­mögnun bank­anna tveggja sé ekki falin neins konar afstaða til end­an­legrar nið­ur­stöðu máls­ins. ESA mun nú kalla eftir frek­ari athuga­semdum frá íslenskum stjórn­völdum og öðrum aðilum sem hafa áhuga á að koma á fram­færi athuga­semdum um mál­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None