ESA skoðar losun fjármagnshafta ekki frekar - telur það ekki á sínu valdsviði

15996599272_a09261720e_z.jpg
Auglýsing

Eft­ir­lits­stofnun EFTA, ESA, mun ekki skoða ráð­staf­anir stjórn­valda vegna los­unar fjár­magns­hafta frek­ar. Til skoð­unar var hvort það fælist rík­is­að­stoð í því að heim­ila þrota­búum frá­drátt frá stöð­ug­leika­skatti og fram­lag í sam­ræmi við stöð­ug­leika­skil­yrð­in.

Stjórn­völd upp­lýstu ESA um það fyrr á þessu ári að í áformum um losun fjár­magns­hafta væru heim­ildir til frá­dráttar frá stöð­ug­leika­skatti og áætl­anir væru um við­töku stöðu­leika­fram­lags. Stjórn­völd spurðu ESA hvort í þessum ráð­stöf­unum gæti falist óbein rík­is­að­stoð sem færi gegn EES-­samn­ingn­um.

Íslensk stjórn­völd héldu því fram að af því að þessar heim­ildir væru hluti af vernd­ar­ráð­stöf­unum „vegna rösk­unar á íslenskum fjár­magns­mark­aði og erf­ið­leika tengdum greiðslu­jöfn­uði“ féllu þær ekki undir eft­ir­lit ESA. ESA er sam­mála því að málið falli ekki undir vald­svið stofn­un­ar­inn­ar.

Auglýsing

Þetta segja stjórn­völd vega mik­il­vægan áfanga í áætlun stjórn­valda um losun haft­anna.

Gert er ráð fyrir því í áætlun stjórn­valda að hægt sé að fá frá­drátt frá skatti með því að ráð­ast í lang­tíma­fjár­fest­ing­ar. Ann­ars vegar með því að ráð­ast í frum­fjár­fest­ingar í skulda­bréfum sem eru útgefin af inn­lendum bönkum eða spari­sjóð­um, og hins vegar frum­fjár­fest­ingar í víkj­andi lánum sem eru veitt til banka eða spari­sjóða. Þannig á að vera mögu­legt að binda fjár­muni í erlendum gjald­eyri til lengri tíma í fjár­fest­ingum í erlendri mynt. Það er talið ein af lyk­il­for­send­unum fyrir því að vel tak­ist til við losun fjár­magns­hafta að inn­lendir aðilar hafi greiðan aðgang að alþjóð­legri fjár­mögnun á eðli­legum kjörum og að fjár­mála­stöð­ug­leiki sé tryggð­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None