Eygló segir gagnrýni á húsnæðisbætur koma frá þeim sem vilji engan opinberan stuðning

Screen-Shot-2015-05-20-at-19.00.14.png
Auglýsing

Eygló Harð­ar­dótt­ir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, gagn­rýnir þá sem hafa gagn­rýnt frum­varp hennar um hús­næð­is­bætur í nýjum pistli á heima­síðu sinni.

Hún segir að þær fregnir að fleiri eigi von á hús­næð­is­stuðn­ingi, með til­komu hús­næð­is­bóta­kerf­is­ins, hafi orðið til­efni leiðs mis­skiln­ings. „Spurt hefur verið hvort hygla eigi tekju­háum sér­stak­lega með þessum breyt­ing­um. Vissu­lega mun jafn­ari réttur til hús­næð­is­bóta styrkja öll heim­ili, ekki síst milli­tekju­fólk á leigu­mark­aði. Tekju­teng­ingar munu hins veg­ar, líkt og ávallt þegar við tölum um slík jöfn­un­ar­tæki, tryggja að þeir sem hafa minnst fá hlut­falls­lega mestan stuðn­ing,“ skrifar Eygló.

Í kjöl­farið biður hún þá sem hafi gripið þennan „mis­skiln­ing á lofti“ að velta því fyrir sér hvaðan sú gagn­rýni kunni að vera kom­in. „Kann að vera að hún eigi heim­il­is­festi hjá þeim sem vilja helst engan opin­beran stuðn­ing til hús­næð­is­mála? Hjá þeim sem vilja að einka­að­ilar geti einir gert út á erf­iða stöðu heim­il­anna að þessu leyti? Er hún að koma frá þeim sem vilja alls ekki sjá hækkun hús­næð­is­bóta verða að veru­leika?“

Auglýsing

Fjár­mála­ráðu­neytið helsti gagn­rýn­and­inn



Helsta gagn­rýnin sem fram hefur komið á frum­varp Eyglóar er sú gagn­rýni sem skrif­stofa opin­berra fjár­mála í fjár­mála­ráðu­neyt­inu setti fram í umsögn sinni um frum­varp­ið.

Í umsögn sinni sagði fjár­mála­ráðu­neytið meðal ann­ars að sam­kvæmt grein­ingum þess myndi nið­ur­greiðsla húsa­leigu verða hlut­falls­lega meiri eftir því sem tekjur heim­il­is­ins eru hærri í nýja kerf­inu. Það sé í and­stöðu við yfir­lýst mark­mið frum­varps­ins, sem er auk ann­ars að auka stuðn­ing við efna­minni ein­stak­linga og fjöl­skyld­ur.

Þá segir ráðu­neytið að auk­inn rík­is­stuðn­ingur við leigj­endur muni að öllum lík­indum leiða til hækk­unar á leigu­verði, sem kynni að skila meiri ábata fyrir leigu­sala en fyrir leigj­end­ur, auk þess sem sveit­ar­fé­lög kunni að draga úr sínum sér­stöku húsa­leigu­bót­um. Útgjöld rík­is­ins muni mögu­lega aukast um allt að tvo millj­arða á ári og ekki hafi verið gert ráð fyrir auknum útgjöldum í fjár­lögum eða rík­is­fjár­mála­á­ætl­un. Auk þess mun fyr­ir­komu­lagið sam­kvæmt breyttu kerfi, að hús­næð­is­bætur fari til rík­is­ins en sér­stakar húsa­leigu­bætur verði eftir hjá sveit­ar­fé­lög­um, flækja ferlið og auka rekstr­ar­kostn­að. Þá muni breyt­ing­arnar ekki koma öryrkjum og öldruðum eins vel og þeim sem eru í námi eða vinnu.

Var hluti af sátt á vinnu­mark­aði



Í Morg­un­blað­inu í morgun kom fram að ekki sé víð­tækur stuðn­ingur við frum­varpið innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og raunar ekki heldur við annað boðað frum­varp Eyglóar um félags­legt hús­næð­is­kerfi. Frum­vörpin þurfi að taka veru­legum breyt­ingum svo að sjálf­stæð­is­menn styðji þau.

Eygló bendir á í sam­tali við blaðið að þessi frum­vörp hafi verið hluti af aðgerðum sem rík­is­stjórnin lof­aði í tengslum við gerð kjara­samn­inga. „Að­ilar vinnu­mark­að­ar­ins líta svo á að þessar breyt­ingar á hús­næð­is­kerf­inu séu hluti af sam­komu­lagi þeirra og for­senda fyrir gerð kjara­samn­inga. Ég hef ekki heyrt neitt annað frá for­ystu Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en að menn hafi í hyggju að standa við það, enda stóð öll rík­is­stjórnin að þess­ari yfir­lýs­ing­u.“

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None