Eygló segir upplýsingar frá fjármálaráðuneyti um frumvarp ekki eiga við rök að styðjast

mf131030-mfdx5960.jpg
Auglýsing

Eygló Harð­ar­dótt­ir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, seg­ist ekki hafa fallið frá áformum sínum um að leggja fram frum­varp sitt um stofn­styrki til félags­legra leigu­í­búða. Þetta segir hún í frétt á vef vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins. Hún segir að fréttir fjöl­miðla um að frum­varpið hafi verið dregið til baka eigi ekki við rök að styðj­ast.

Fjár­mála­ráðu­neytið greindi hins vegar frá því í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans í dag að vel­ferð­ar­ráðu­neytið hafi fallið frá því undir lok apríl að leggja fram frum­varpið í þáver­andi mynd. Vel­ferða­ráðu­neytið hafi síðan þá haft til skoð­unar að leggja fram annað frum­varp „með tals­vert breyttri útfærslu,“ eins og sagði í svar­inu. Fjár­mála­ráðu­neytið sagði hins vegar að það megi „telja ósenni­legt úr því sem komið er að lokið verði við útfærslu á nýju frum­varpi um þennan mála­flokk ásamt umsögn um fjár­hags­á­hrif til fram­lagn­ingar á vor­þing­i.“

Það er því ekki sam­hljómur um það meðal ráðu­neyta hver staða máls­ins er. Í frétt­inni á vef vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins segir Eygló að ekki sé hægt að segja fyrir hvort breyt­ingar verði gerðar á frum­varp­inu en það muni skýr­ast á næst­unni. Kjarn­inn hefur óskað eftir við­tali við Eygló Harð­ar­dótt­ur.

Auglýsing

Sam­kvæmt starfs­á­ætlun þings­ins eru fimm og hálfur þing­funda­dagur eftir af þessu þingi, auk eld­hús­dags.

Vakti hörð við­brögð á þingi



Frétt Kjarn­ans um svör fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins var gerð að umtals­efni á Alþingi í dag, þegar verið var að ræða ramma­á­ætl­un. Eins og greint hefur verið frá hafa stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn lýst furðu sinni á því að verið væri að ræða ramma­á­ætlun þriðja dag­inn í röð, í stað þess að ræða um kjara­mál og ein­hver þeirra stóru frum­varpa sem rík­is­stjórnin hefur boðað að eigi að koma fram á þessu þingi.

Katrín Júl­í­us­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, sagð­ist velta því fyrir sér í kjöl­far frétta af frum­varpi Eyglóar að verið væri að ræða ramma­á­ætlun „til þess að breiða yfir það að menn eru orðnir getu- og hug­mynda­lausir þegar kemur að því með hvaða hætti menn eiga að nálg­ast þessi erf­iðu mál á vinnu­mark­að­i.“ Undir þetta tóku meðal ann­ars þær Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir og Svan­dís Svav­ars­dóttir þing­menn VG. Sig­ríður Ingi­björg Inga­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþing­is, lýsti furðu sinni á því að búið væri að draga til baka frum­varpið án þess að ræða við nefnd­ina. „Mér finnst þetta full­komin van­virð­ing við vel­ferð­ar­nefnd og þing­menn og ætl­ast til þess að for­seti fari yfir þessi mál“ með félags­mála­ráð­herra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None