Facebook-síða Reykjavíkurborgar reifst við fulltrúa Sjálfstæðisflokksins

radhus.jpg
Auglýsing

Borg­ar­ráðs­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa óskað eftir svörum um það hvernig er staðið að sam­skipta­síðu undir nafni Reykja­vík­ur­borgar á Face­book. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem borg­ar­stjórn­ar­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins sendi frá sér rétt í þessu. Ástæðan er sú að Face­book-­síða Reykja­víkur reifst við Björn Jón Braga­son, full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks í hverf­is­ráði Laug­ar­dals og fjöl­menn­ing­ar­ráði og vara­mann í vel­ferð­ar­ráði, og gerði honum upp skoð­an­ir. Ástæðan var sú að Björn Jón benti á í athuga­semda­kerfi á Face­book-­síðu borg­ar­innar að gatna­kerfi hennar væri hrunið „vegna við­halds­leysis vinstri­manna síð­ustu ára sem hefðu verið upp­teknir við að eyða pen­ingum almennnings í gælu­verk­efn­i.“

Reykja­vík­ur­borg svar­aði: „Þetta er ekki rétt hjá Birni Jóni Braga­syni sem gengur hér póli­tískra erinda D-list­ans á síð­unni. Hann er mað­ur­inn sem vill engar sum­ar­göt­ur“.

rvk1

Auglýsing

Skömmu síðar gaf Bjarni Brynj­ólfs­son, upp­lýs­inga­full­trúi Reykja­vík­ur­borg­ar, sig fram sem þann sem skrif­aði færsl­una í nafni borg­ar­inna og biðst afsök­unar á athæf­inu. Hann sagð­ist hafa ritað færsl­una í flýti.

bjarni brynjólgs

Borg­ar­ráðs­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks vilja hins vegar skýr­ari svör um hvernig staðið sé að sam­skipta­síð­unni. Í til­kynn­ingu frá þeim seg­ir: „ Spurn­ingin kemur til vegna þess að full­trúi af lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins setti inn gagn­rýni á síð­una sem var svarað með skæt­ingi og honum jafn­vel gerðar upp skoð­anir í skjóli nafn­leysis þrátt fyrir að hér sé um ein­hvers konar sam­skipta­síðu Reykja­vík­ur­borgar að ræða. Óskað er eftir upp­lýs­ingum um í umboði hvers þessi vinna er unnin innan borg­ar­innar og hvaða starfs­menn borg­ar­innar sinna fram­kvæmd henn­ar. Þar sem þetta er undir nafni Reykja­vík­ur­borgar er þarna um opin­bera rödd borg­ar­innar að ræða og þar af leið­andi und­ar­leg ásýnd á það hvernig sam­tal borg­ar­yf­ir­völd vilja hafa við íbúa sína“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None