Fatlaðar konur um orðræðuna: „Við erum ekki að finnast dánar í flutningabílum“

flottafolk.jpg
Auglýsing

„Þar að auki er staða okkar ekki þess eðlis að hægt sé að bera hana saman við stöðu flótta­fólks. Við erum ekki að finn­ast dánar í flutn­inga­bílum né að drukkna í Mið­jarð­ar­haf­inu. Að líkja lífi okkar saman er í besta falli full­kom­legt skiln­ings­leysi á lífi okkar og flótta­fólks.“

Þetta segja fatl­aðar konur í sam­tök­un­um Tabú og stýri­hópi Kvenna­hreyf­ingar ÖBÍ í yfir­lýs­ingu í dag um mót­töku flótta­fólks. Í yfir­lýs­ing­unni er mál­flutn­ingur þess efnis að ekki eigi að taka á móti flótta­fólki á Íslandi vegna þess að hér­lendis búi þegar þjóð­fé­lags­hópur við mann­rétt­inda­brot gagn­rýnd­ur. Kon­urnar segj­ast ekki kæra sig um að vera not­aðar sem skálka­skjól fyrir hug­laust stjórn­mála­fólk.

„Stjórn­völd, sér­stak­lega tals­menn þessa sjón­ar­horns, hafa ekki lagt sig sér­stak­lega fram við að fjár­festa í lífi okkar hingað til og finnst lítið til mann­rétt­inda okkar koma. Því er óskilj­an­legt hvers vegna þeim er annt um okkur allt í einu núna. Það þarf heldur ekki mikið hug­mynda­flug í fjár­málum til þess að sjá að það er auð­veld­lega hægt að reka sam­fé­lög án þess að brjóta á mann­rétt­indum nokk­urs hóps,“ segir í yfir­lýs­ingu kvenn­anna sem hvetja stjórn­völd til að taka á móti flótta­fólki strax.

Auglýsing

Yfir­lýs­ing­una í heild má lesa hér að neð­an.

Yfir­lýs­ing fatl­aðra kvenna í Tabú og stýri­hópi Kvenna­hreyf­ingar ÖBÍ um mót­töku flótta­fólks 



Við erum ánægðar með þau við­brögð sem óbæri­leg staða fólks á flótta frá Sýr­landi og öðrum átaka­svæðum hefur fengið hér á landi. Einnig fögnum við þeim jákvæðu skila­boð­um, sem svo margar mann­eskjur hafa sam­ein­ast um og látið í ljós, um að það eigi að vera sjálf­sagt að ­bjóða fram krafta okkar til þess að búa flótta­fólki örugg­ara skjól.



Við getum hins vegar ekki litið fram hjá þeim rödd­um, einkum röddum stjórn­mála­fólks, sem segja að ekki eigi að taka á móti flótta­fólki vegna þess að á Íslandi búi þjóð­fé­lags­hópar við mann­rétt­inda­brot og þeirra þörfum þurfi að mæta áður en öðrum hópum er mætt. Það er vissu­lega hvers­dags­legur veru­leiki okkar sem fatl­aðra kvenna að brotið er á rétti okkar og að við búum ekki við sömu tæki­færi og ófatlað fólk.



Við lýsum okkur þó algjör­lega and­snúnar þessum mál­flutn­ingi. Stjórn­völd, sér­stak­lega tals­menn þessa sjón­ar­horns, hafa ekki lagt sig sér­stak­lega fram við að fjár­festa í lífi okkar hingað til og finnst lítið til mann­rétt­inda okkar koma. Því er óskilj­an­legt hvers vegna þeim er annt um okkur allt í einu núna. Það þarf heldur ekki mikið hug­mynda­flug í fjár­málum til þess að sjá að það er auð­veld­lega hægt að reka sam­fé­lög án þess að brjóta á mann­rétt­indum nokk­urs hóps.



Þar að auki er staða okkar ekki þess eðlis að hægt sé að bera hana saman við stöðu flótta­fólks. Við erum ekki að finn­ast dánar í flutn­inga­bílum né að drukkna í Mið­jarð­ar­haf­inu. Að líkja lífi okkar saman er í besta falli full­kom­legt skiln­ings­leysi á lífi okkar og flótta­fólks.



Að lokum leggjum við þunga áherslu á að mann­rétt­inda­brot gagn­vart okk­ur, sem vissu­lega eru gróf á Íslandi, séu ekki notuð sem afsökun eða ástæða fyrir því að taka með­vit­aða ákvörðun um að brjóta á öðrum hópum með aðgerð­ar­leysi. Við kærum okkur ekki um að vera not­aðar sem skálka­skjól fyrir hug­laust stjórn­mála­fólk.



Við skorum á stjórn­völd að taka á móti flótta­fólki strax og að það verði gert með til­liti til reynslu­heims flótta­fólks og af virð­ingu við sögu þess. Jafn­framt að lögð verði sér­stök áhersla á að aðstoða jað­ar­sett­ari hópa flótta­fólks, t.d. fatlað fólk, einkum konur og börn, þar sem það er í enn við­kvæm­ari stöðu hvað varðar ofbeldi og dauðs­föll í stríðs­á­tökum og á flótta.



Kær­leiks- og bar­áttu­kveðja,



Ágústa Eir Guð­nýj­ar­dóttir

Arn­dís Hrund Guð­mars­dóttir

Arn­dís Lóa Magn­ús­dóttir

Embla Guð­rúnar Ágústs­dóttir

Freyja Har­alds­dóttir

Guð­björg Kristín Eiríks­dóttir

Iva Marín Adrichem

Mar­grét Ýr Ein­ars­dóttir

Pála Kristín Berg­sveins­dóttir

Salóme Mist Krist­jáns­dóttir

Sig­ríður Jóns­dóttir

Soffía Mel­steð

Rán Birg­is­dóttir

Þor­bera Fjöln­is­dóttir

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None