Félag Eyþórs hagnaðist um 388,4 milljónir vegna afskriftar á láni frá Samherja

Eigið fé félags Eyþórs Arnalds fór úr því að vera neikvætt um 305 milljónir í að vera jákvætt um 83,9 milljónir í fyrra. Félag í eigu Samherja afskrifaði seljendalán sem veitt var vegna kaupa í útgáfufélagi Morgunblaðsins.

Eyþór Arnalds var oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Eyþór Arnalds var oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Auglýsing

Ram­ses II, félag í eigu Eyþórs Arn­alds, fyrr­ver­andi odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­borg, hagn­að­ist um 388,4 millj­ónir króna í fyrra. Um var að ræða mik­inn við­snún­ing frá fyrra ári þegar félagið tap­aði 15,6 millj­ónum króna. 

Hagn­að­ur­inn er nán­ast allur kom­inn til vegna þess að selj­enda­lán sem félagið Katt­ar­nef veitti af afskrifuð í fyrra, en hún stóð í 386,8 millj­ónum króna í lok árs 2020. Í árs­reikn­ingi Ram­ses II kemur fram að „aðrir fjár­magnslið­ir“ hafi verið jákvæðir upp á tæp­lega 382 millj­ónir króna í fyrra.

Hlut­deild í hagn­aði móð­ur­fé­lags Árvak­urs, Þórs­merk­ur, gerir það að verkum að Ram­ses II bók­færði 17,3 milljón króna jákvæða inn­komu. 

Vegna lækk­aði skulda­staða Ram­ses II úr 387 millj­ónum króna í 15,8 millj­ónir króna milli ára og eig­in­fjár­staða félags­ins fór úr því að vera nei­kvætt um 305 millj­ónir króna í að vera jákvæð um 83,9 millj­ónir króna. 

Lánið var upp­haf­lega veitt svo Eyþór gæti orðið stærsti eig­andi Árvak­ur, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins. 

Þrjár útgerðir seldu hluti sína til Eyþórs

Sam­herji, Síld­­ar­vinnslan og Vísir seldu sína hluti í Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, árið 2017 til Eyþórs. Alls var um að ræða 26,62 pró­­sent eign­­ar­hlut. Stærsti bit­inn var 18,43 pró­­sent hlutur sem Eyþór keypti af félagi Sam­herja, sem ber nafnið Katta­nef ehf. Eyþór lagði ekk­ert út fyrir kaup­unum heldur veitti selj­and­inn honum selj­enda­lán. ­Stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar er Sam­herji og hún keypti nýverið allt hlutafé í Vísi.

Auglýsing
Lánið féll á gjald­daga árið 2020 og Katt­­ar­­nef hefur afskrifað það að fullu. Í árs­­reikn­ingi félags Eyþórs, Ram­ses ehf, vegna árs­ins 2020 kom fram að gjald­­­fallnar afborg­­­anir félags­­­ins hafi numið alls 386,8 millj­­­ónum króna í árs­­lok þess árs. 

Í fyrra náð­ist svo sam­komu­lag á milli félags­­­ins Ram­ses II, sem er í fullri eigu Eyþórs, og félags­­­ins Katt­­­ar­­­nefs um að Ram­ses, líka í fullri eigu Eyþórs, keypti kröf­una sem Katt­­­ar­­­nef átti á Ram­ses II. Virði hennar var, líkt og áður sagði, krónur núll í bókum Katta­nefs.

Hlutur Eyþórs í Árvakri hefur rýrnað vegna ítrek­aðra hluta­fjár­­inn­­­spýt­inga ann­­­arra hlut­hafa og Ram­ses II á nú 12,08 pró­sent hlut í útgáfu­­­fé­lag­inu. Sá eign­­­ar­hlutur var met­inn á 82,4 millj­­­ónir króna í lok árs 2020 en hafði verið bók­færður á 325 millj­ónir króna árið 2017.

Mikið rekstr­ar­tap

Rekstr­­ar­tap Árvak­­urs á síð­­asta ári var 113 millj­­ónir króna. Það er lægra rekstr­­ar­tap en árið áður, þegar útgáfu­­fé­lagið tap­aði 210 millj­­ónum króna. Í fyrra fékk Árvakur þó 81 millj­­ónir króna í rekstr­­ar­­styrk úr rík­­is­­sjóði auk þess sem félagið frest­aði greiðslu á stað­greiðslu launa starfs­­­manna og trygg­inga­gjaldi í fyrra upp á alls 122 millj­­­ónir króna. Um er að ræða vaxta­­­laust lán úr rík­­­is­­­sjóði sem þarf að end­­­ur­greið­­­ast fyrir mitt ár 2026. Greiðslur eiga að hefj­­­ast á þessu ári.

Í frétt sem birt­ist í Morg­un­­­blað­inu í byrjun maí var greint frá því að hefði skilað 110 millj­­­óna króna hagn­aði í fyrra. Í þeirri frétt var ekki minnst á vaxta­­lausa lán­­töku hjá rík­­is­­sjóð­i. 

Í árs­­reikn­ingi Árvakur sést hvernig sá hagn­aður myndast, en hann er ekki til­­kom­inn vegna reglu­­legs rekst­­urs, af honum er áfram sem áður tap. 

Hlut­­­deild í afkomu dótt­­­ur- og hlut­­­deild­­­ar­­­fé­laga, sem teng­ist ekki grunn­­­rekstri Árvak­­­urs, útskýrir þann mun sem er á end­an­­­legri afkomu og rekstr­­­ar­af­komu, en hún er jákvæð um 243 millj­­­ónir króna. Þar skiptir mestu hlut­­­deild í Lands­­­prenti, sem rekur prent­smiðju sem prentar þorra þeirra prent­miðla sem gefnir eru út á Íslandi, en hún var 196 millj­­­ónir króna í fyrra. Rekstr­­ar­­tekjur dróg­ust þó sam­­an.

Hlut­­­deild í afkomu dótt­­­ur- og hlut­­­deild­­­ar­­­fé­laga, sem teng­ist ekki grunn­­­rekstri Árvak­­­urs, útskýrir þann mun sem er á end­an­­­legri afkomu og rekstr­­­ar­af­komu, en hún er jákvæð um 243 millj­­­ónir króna. Þar skiptir mestu hlut­­­deild í Lands­­­prenti, sem rekur prent­smiðju sem prentar þorra þeirra prent­miðla sem gefnir eru út á Íslandi, en hún var 196 millj­­­ónir króna í fyrra. Rekstr­­ar­­tekjur dróg­ust þó sam­­an.

Morg­un­blaðið hefur hrunið í lestri

Frá því að nýir eig­endur tóku við rekstri Árvak­­­­urs í febr­­­­úar 2009 undir hatti Þór­s­­­­merkur og til loka árs 2020 hefur útgáfu­­­­­fé­lagið tapað yfir 2,5 millj­­­­­örðum króna. Eig­enda­hóp­­­­­ur­inn, sem hefur tekið ein­hverjum breyt­ingum á tíma­bil­inu, hefur nú lagt Árvakri til sam­tals tvo millj­­­­­arða króna í nýtt hluta­­­­­fé. 

Þegar nýju eig­end­­­­­­urnir tóku við rekstr­inum var Morg­un­­­­­­blað­ið, flagg­­­­­­skip útgáf­unn­­­­­­ar, lesið af rúm­­­­­­lega 40 pró­­­­­­sent þjóð­­­­­­ar­inn­­­­­­ar. Í síð­­­­­­­­­­­ustu birtu mæl­ingu Gallup á lestri prent­miðla var sá lestur kom­inn niður í 16,9 pró­­­­­­sent og hefur aldrei mælst lægri. Lestur blaðs­ins hjá 18-49 ára mælist 7,8 pró­­­­sent.

Vefur útgáf­unn­­­­­­ar, Mbl.is, var lengi vel mest lesni vefur lands­ins en síð­­­­­­­­­­­ustu mis­­­­­s­eri hefur Vís­ir.is, vefur í eigu Sýn­­­­­­ar, oftar mælst með fleiri not­end­­­­­­ur. Mbl.is hefur þó enn vinn­ing­inn þegar kemur að fjölda flett­inga en mið­l­­­arnir tveir hafa und­an­farið verið með nán­­­ast sama fjölda inn­­­lita á viku.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent