„Félagsfólk Eflingar sem treystir á aðstoð síns stéttarfélags situr uppi með laskað félag“

Forseti ASÍ hvetur þá stjórnarmenn Eflingar sem samþykktu tillögu um að öllu starfsfólki félagsins yrði sagt upp störfum að endurskoða ákvörðunina. Samkvæmt upplýsingum Kjarnans ætlar Sólveig Anna ekki að tjá sig fyrr en samráði við trúnaðarmenn er lokið.

Drífa Snædal forseti ASÍ
Drífa Snædal forseti ASÍ
Auglýsing

„Ég hélt ekki að ég ætti eftir að upp­lifa þann dag að stétt­ar­fé­lag segði upp öllu starfs­fólki sínu á einu brett­i.“

Þetta segir Drífa Snæ­dal for­seti ASÍ í stöðu­upp­færslu á Face­book í dag. Vísir greindi frá því í gær­kvöldi að Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, for­maður Efl­ing­ar, hefði lagt til á stjórn­ar­fundi félags­ins að öllu starfs­fólki Efl­ingar yrði sagt upp störf­um. Til­lagan var lögð fram og sam­þykkt af átta manna meiri­hluta B-lista undir for­ystu Sól­veigar Önnu.

Drífa segir í stöðu­upp­færsl­unni að þetta hafi ekki gerst áður hér á landi og henni til efs að til sam­bæri­legra aðgerða hafi verið gripið nokk­urs staðar á Norð­ur­lönd­unum eða í öðrum löndum með frjálsa og skipu­lagða verka­lýðs­hreyf­ingu.

Auglýsing

„Hóp­upp­sagnir að nauð­synja­lausu eru ekk­ert annað en aðför að rétt­indum launa­fólks og ganga gegn því sem verka­lýðs­hreyf­ingin stendur fyr­ir: Atvinnu- og afkomu­ör­yggi.

Á vinnu­staðnum ríkir nú upp­lausn og alveg ljóst að mikil reynsla og þekk­ing hverfur úr húsi. Þekk­ing á túlkun kjara­samn­inga, greiðslum úr sjúkra­sjóð­um, fræðslu­sjóð­um, úthlutun orlofs­húsa, ráð­gjöf um starfsend­ur­hæf­ingu, inn­heimtu van­gold­inna launa og allt annað sem stétt­ar­fé­lög vinna að dags dag­lega. Félags­fólk Efl­ingar sem treystir á aðstoð síns stétt­ar­fé­lags situr uppi með laskað félag. Við myndum for­dæma öll fyr­ir­tæki sem stæðu fyrir slíkum gjörð­u­m,“ skrifar hún.

Drífa hvetur að lokum þá stjórn­ar­menn sem sam­þykktu til­lög­una að end­ur­skoða ákvörð­un­ina. Hún segir að ASÍ muni taka málið fyrir á sínum vett­vangi.

Ég hélt ekki að ég ætti eftir að upp­lifa þann dag að stétt­ar­fé­lag segði upp öllu starfs­fólki sínu á einu bretti. Þetta...

Posted by Drífa Snæ­dal on Tues­day, April 12, 2022

Mun ekki tjá sig á meðan sam­ráð stendur yfir

Stjórn Efl­ingar sam­þykkti í gær til­lögu um hóp­upp­sögn vegna breyt­inga á ráðn­ing­ar­kjörum allra starfs­manna skrif­stofu félags­ins. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans er verið að taka á ósam­ræmi og úreltum venjum í starfs­kjörum og leggja grunn að jafn­launa­vott­un. Einnig verða gerðar breyt­ingar á mönn­un, verka­skipt­ingu og hæfn­is­kröfum starfs­manna.

Öllum laun­uðum starfs­mönnum félags­ins verður sagt upp en þeir eru um 45 til 50 eftir því hvernig störfin eru skil­greind. Allir starfs­menn­irnir verða beðnir að vinna upp­sagn­ar­frest­inn og allir núver­andi starfs­menn verða hvattir til að sækja um. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans eru engar und­an­tekn­ingar á þessum fyr­ir­mælum þannig að starfs­manna­hóp­inn verði ekki dreg­inn í dilka. Öll störfin verða jafn­framt aug­lýst.

Fundað var með tveimur trún­að­ar­mönnum starfs­fólks í gær strax eftir að stjórn sam­þykkti til­lög­una og stendur nú yfir sam­ráð við þá, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. Sól­veig Anna hefur ekki tjáð sig opin­ber­lega um málið en sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans ætlar hún ekki að tjá sig um málið á meðan sam­ráðið stendur yfir en sam­kvæmt lögum á að ríkja trún­aður um slíkt sam­ráð og því þarf að ljúka áður en hægt er að fram­kvæma upp­sagn­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent