Ferðamenn 1,3 milljónir í ár og hótelnýtingin er betri en í London

forsidumynd1.jpg
Auglýsing

Útflutn­ings­tekjur ferða­þjón­ust­unnar á árinu 2014 voru 302 millj­arðar króna sam­an­borið við 241 millj­arð króna vegna útflutn­ings sjáv­ar­út­veg­ar­ins. Ferða­þjón­ustan er því orðin langstærsti útflutn­ings­at­vinnu­vegur Íslend­inga og skilar tæp­lega þriðj­ungi allra útflutn­ings­tekna. Þetta kemur fram í grein­ingu Íslands­banka sem Frétta­blaðið greinir frá.

Í grein­ing­unni er áætlað að tekjur af ferða­þjón­ustu verði 342 millj­arðar króna á þessu ári, eða 29 pró­sent af heild­ar­út­flutn­inga­tekj­um. Það er því gert ráð fyrir 40 millj­örðum króna til við­bótar í kass­ann vegna geirans en í fyrra, eða rúm­lega 13 pró­sent aukn­ingu á milli ára.

Í grein­ing­unni er áætlað að tekjur af ferða­þjón­ustu verði 342 millj­arðar króna á þessu ári, eða 29 pró­sent af heildarútflutningatekjum.

Auglýsing

Vöxt­ur­inn hefur eðli­lega haft mikil áhrif á atvinnu­lífið lík­a. ­Fólki sem starf­aði við ferða­þjón­ustu og tengdar greinar fjölg­aði um 2.700 á árinu 2014. Alls fjölg­aði starf­andi Íslend­ingum um 2.800 á því ári. Því eru vís­bend­ingar um að vöxtur ferða­þjón­ustu beri ábyrgð á nær allri fjölgun starfa í fyrra. Í grein­ingu Íslands­banka segir að rúm­lega helm­ingur þeirra tíu þús­und starfa sem hafi skap­ast á Íslandi frá árinu 2010 hafi skap­ast í ferða­þjón­ustu. Sam­hliða hefur atvinnu­leysi hríð­lækkað og mæld­ist 4,4 pró­sent í jan­úar síð­ast­liðn­um.

Ferða­þjón­usta hafði úrslita­þýð­ingu fyrir þjóð­ar­búið



Í Morg­un­blað­inu í morgun er rætt við Yngva Harð­ar­son, fram­kvæmda­stjóra Ana­lyt­ica, sem segir að gjald­eyr­is­öflun ferða­þjón­ust­unnar hafi haft úrslita­þýð­ingu fyrir gjald­eyr­is­jöfnum þjóð­ar­bús­ins í fyrra og komið í veg fyrir veik­ingu krón­unar vegna halla á við­skiptum við útlönd. Það geri það að verkum að inn­flutt verð­bólga er lægri.

Afgangur af þjón­ustu­út­flutn­ingi var 138,8 millj­arðar króna í fyrra á sama tíma og ell­efu millj­arða króna halli var á vöru­skipt­um. Þetta kom fram í tölum sem Seðla­bank­inn birti í gær. Þar sagði einnig að afgangur á þátta­tekjum hafi mælst í fyrsta sinn frá því á þriðja árs­fjórð­ungi árs­ins 2007, en jön­uður frum­tekna var hag­stæður um 3,2 millj­arða króna.

Ferða­menn verða 1,3 millj­ónir og góð hót­el­nýt­ing



Heild­ar­fjöldi erlendra ferða­manna sem komu til Íslands á árinu 2014 er er talin vera um 1,1 millj­ón. Tæp­lega ein milljón kom um Leifs­stöð og um 121 þús­und með far­þeg­ar­skip­um. Í grein­ingu Íslands­banka er gert ráð fyrir að 1,2 millj­ónir ferða­manna koma í gegnum Leifs­stöð til lands­ins og að um 150 þús­und ferða­menn komi í gegnum aðra staði á land­inu. Áætlar grein­ing­ar­deildin að um 1.350 þús­und ferða­menn heim­sæki Ísland á árinu sem er fjölgun um tæpan fjórð­ung. Sam­kvæmt þessu verða ferða­menn því fjór­falt fleiri en Íslend­ing­ar.

­Á­ætlar grein­ing­ar­deildin að um 1.350 þús­und ferða­menn heim­sæki Ísland á árinu sem er fjölgun um tæpan fjórð­ung. Sam­kvæmt þessu verða ferða­menn því fjór­falt fleiri en Íslendingar. 

Aukn­ing er strax orðin sýni­leg. Áætl­un­ar­ferðir frá Kefla­vík­ur­flug­velli voru rúm­lega 50 pró­sent fleiri í febr­úar 2015 en í sama mán­uði árið 2013. Þá voru þær 486 en voru nú 764 tals­ins.

Mikið hefur verið rætt um fjölgun hót­el­her­bergja und­an­farin miss­eri, enda má vart sjást gras­bali á höf­uð­borg­ar­svæð­inu nema á honum sé byggt hót­el. Í grein­ingu Íslands­banka kemur hins vegar fram að 84% nýt­ing hafi verið á hót­el­her­bergjum á svæð­inu í fyrra, sem er sögu­legt hámark og betri nýt­ing en í til dæmis London og Amster­dam. Áætlað er að um 4.500 hót­el­her­bergi verði til á suð­vest­ur­horni lands­ins í árs­lok 2016, eða þriðj­ungs­fjölg­un. Þrátt fyrir þá miklu fjölgun áætlar grein­ing­ar­deild Íslands­banka að þörf sé á þessum hót­el­rýmum og telur að nýt­ing­ar­hlut­fallið verði enn mjög hátt. Um 700 ný hót­el­her­bergi munu fara í rekstur á árinu og mæta þar með auk­inni eft­ir­spurn eftir hót­elgist­ingu á svæð­inu.

Mikið hefur verið rætt um fjölgun hótelherbergja undanfarin misseri, enda má vart sjást grasbali á höfuðborgarsvæðinu nema á honum sé byggt hótel. Í greiningu Íslandsbanka kemur hins vegar fram að 84 nýting hafi verið á hótelherbergjum á svæðinu í fyrra, sem er sögulegt hámark og betri nýting en í til dæmis London og Amsterdam. Mikið hefur verið rætt um fjölgun hót­el­her­bergja und­an­farin miss­eri, enda má vart sjást gras­bali á höf­uð­borg­ar­svæð­inu nema á honum sé byggt hót­el. Í grein­ingu Íslands­banka kemur hins vegar fram að 84 nýt­ing hafi verið á hót­el­her­bergjum á svæð­inu í fyrra, sem er sögu­legt hámark og betri nýt­ing en í til dæmis London og Amster­dam.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None