Ferðaþjónustan vex en framleiðnin ekki - Samkeppnin hörð

kjarninn_ferdamenn.jpg
Auglýsing

Fram­leiðni á hvern starfs­mann í ferða­þjón­ustu hefur í flestum atvinnu­greinum ferða­þón­ust­unnar dreg­ist saman á síð­ustu árum, sam­kvæmt útreikn­ingum grein­ing­ar­deildar Arion banka. Hefur sam­dráttur orðið í fram­leiðni þrátt fyrir tvö­falt fleiri ferða­menn á sama tíma og störf í greinum tengdum ferða­þjón­ustu fjölg­aði úr 11.600 í 16.700 frá 2008 til 2014. Þrátt fyrir að fjölgun ferða­manna umfram fjölgun starfa bendi til aukna fram­leiðni, þá er raunin oft­ast hið gagn­stæða, að mati grein­ing­ar­deild­ar­inn­ar. Ekki er hægt að líta hrátt á tölur um fjölgun starfa og ferða­manna, þar sem starfs­fólk í ferða­þjónstu þjón­ustar einnig Íslend­inga.

Í nýjum Mark­aðs­punkt­um, frétta­bréfi grein­ing­ar­deild­ar­inn­ar, segir að fram­leiðslu­virði á hvern starfs­mann sé hæst í flugi, enda krefj­ist sú grein mik­illa fjár­fest­inga og elds­neytis­kostn­aður sé hlut­falls­lega hár. „Einnig virð­ist sem mesta fram­leiðni­aukn­ingin hafi orðið í flugi, en þar jókst fram­leiðslu­virði á hvern starfs­mann um 6%. Í hinum atvinnu­grein­unum lækk­aði fram­leiðslu­virði á hvern starfs­mann, þó minnst í veit­inga­þjón­ustu. Vinnslu­virði á starfs­mann hefur lækkað í öllum grein­un­um, hlut­falls­lega mest hjá ferða­skrif­stofum þar sem það hefur fallið um helm­ing.“ Myndin hér að neðan sýnir hvernig fram­leiðslu­virði og vinnslu­virði á starfs­mann hefur breyst á síð­ustu árum.



Greiningardeild Arion banka ferðaþjónusta

Töl­urnar eru sagðar í takt við árs­reikn­inga stærsta ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­is­ins, Icelandair Group. „­Sam­kvæmt þeim eru tekjur á hvert stöðu­gildi að raun­virði árið 2014 nán­ast þær sömu og árið 2008, eða um 40 millj­ónir króna. Í árs­reikn­ing­unum má einnig sjá að tekjur á starfs­mann hjá Icelandair féllu um ríf­lega 7% að raun­virði milli 2013 og 2014.“

Auglýsing

Sam­keppni um að kenna?

„Við höfum nýlega bent á að fram­leiðni sé lítil á Íslandi miðað við flest nágranna­ríki okkar og í því ljósi eru nokkur von­brigði að sjá vís­bend­ingar um minnk­andi fram­leiðni vinnu­afls í greinum tengdri ferða­þjón­ustu. Það lítur út fyrir að aðilar í ferða­þjón­ustu séu ekki enn að ná að nýta sér stærð­ar­hag­ræði með fjölgun ferða­manna eins mikið og eflaust margir von­ast til,“ segir í grein­ing­unni. Spurt er hvort sam­keppni haldi aftur af hagn­aði ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja en einnig sé mögu­legt að geir­inn eigi eftir að aðlag­ast hraðri fjölgun ferða­manna.



„Stað­reyndin er sú að margar und­ir­greinar ferða­þjón­ustu eru í eðli sínu miklar sam­keppn­is­grein­ar, sem heldur aftur af hagn­aði fyr­ir­tækja. Fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu keppa hart sín á milli, auk þess að keppa við erlend fyr­ir­tæki og erlenda áfanga­staði. Þar að auki er til­tölu­lega auð­velt fyrir nýja aðila að kom­ast inn á mark­að­inn, t.d. í veit­inga­þjón­ustu og rekstur ferða­skrif­stofa, þar sem slík starf­semi krefst hlut­falls­lega lít­ils fjár­magns og aðgangs­hindr­anir vegna t.d. einka­leyfa eru tak­mark­að­ar. Þetta hefur sést í erlendum rann­sóknum þar sem sam­þjöppun t.d. á hót­el­mark­aði og í sölu pakka­ferða í Bret­landi er til­tölu­lega lít­il, með hlið­sjón af Herf­indahl vísi­töl­unni. Vegna þessa ætti fram­leiðni vinnu­afls í ferða­þjón­ustu að fylgja almennri þróun í hag­kerf­inu, en fram­leiðni á Íslandi hefur aðeins vaxið um ca. 3% að með­al­tali á ári frá alda­mót­um. Einnig er mögu­legt að ferða­manna­geir­inn sé enn að aðlag­ast hraðri fjölgun ferða­manna og hag­ræð­ing eigi eftir að koma fram. Ekki liggja fyrir tölur eftir 2013 en mögu­lega hefur þetta þró­ast til betri vegar síðan þá með auk­inni stærð ferða­þjón­ust­unn­ar. Þó gefa ofan­greindar tölur um tekjur á starfs­mann hjá Icelandair ekki til­efni til að ætla að svo hafi ver­ið.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None