Ferðaþjónustufyrirtæki kært til lögreglu fyrir umhverfisspjöll

Screen.Shot-.2014.10.23.at-.15.50.23.jpg
Auglýsing

Umhverf­is­stofnun hyggst kæra með­limi banda­ríska vél­hjólateym­is­ins Dess­ert Assass­ins til lög­reglu vegna utan­vega­akst­urs og umhverf­is­spjalla á hálendi Íslands. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans verður kæran send lög­reglu í dag, en meðal ann­ars er horft til leið­sögu­manna frá íslenska ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­inu Arctic Rider, sem fóru fyrir hópn­um.

Vísir greindi fyrst frá mál­inu, það er vél­hjóla­ferð­inni og fyr­ir­hug­aðri kæru á hendur Banda­ríkja­mönn­un­um, en þar var hvergi minnst á þátt íslenska ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­is­ins í meintum brotum á nátt­úru­vernd­ar­lög­um.

Arctic Rider, sem hyggst bjóða ­ferða­mönn­um ­upp á skipu­lagðar mót­or­kross vél­hjóla­ferðir næsta sum­ar, ann­að­ist skipu­lagn­ingu fimm daga vél­hjóla­ferð­ar­ ­Banda­ríkja­mann­anna um hálendi Íslands í byrjun sept­em­ber, en um prufu­ferð var að ræða. Mynd­band af ferð banda­ríkja­mann­anna, þar sem þeir sjást stunda umfangs­mik­inn utan­vega­akst­ur, hefur vakið athygli á net­in­u. Að mati Umhverf­is­stofn­unar varðar það sem sést á mynd­band­inu við lög um nátt­úru­vernd. Meint brot varða allt að fjög­urra ára fang­elsi.

Auglýsing

Jóhannes Svein­björns­son, leið­sögu­maður hjá Arctic Rider og eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins, fór fyrir hópn­um, en auk hans voru með í för tveir starfs­menn Arctic Rider, en annar þeirra var Kári Jóns­son, margaldur Íslands­meist­ari í mót­or­kross. Í mynd­band­inu lýsir einn Banda­ríkja­mað­ur­inn hvernig Jóhann­es hafði frum­kvæðið að því að hóp­ur­inn hóf akstur utan slóða á þriðja degi ferð­ar­inn­ar. "We got pretty juiced up as soon as Joey said: Hey, we are going to go ride off-track."

Athygli vekur að stoð­tækja­fyr­ir­tækið Össur og fata­fram­leið­and­inn Cin­ta­mani voru á meðal kost­un­ar­að­ila vél­hjóla­ferð­ar­inn­ar.

Eig­andi Arctic Rider vísar ásök­unum um umhverf­is­spjöll á bug



Kjarn­inn náði tali af Jóhann­esi Svein­björns­syni, eig­enda Arctic Rider, en hann var þá staddur í Banda­ríkj­unum í heim­sókn hjá vél­hjóla­mönn­unum sem fóru með í fyrr­greinda ferð um hálendi Íslands. Hann vísar ásök­unum um að hóp­ur­inn hafi framið umhverf­is­spjöll alfarið á bug.

"Það er mjög sær­andi að heyra við­brögð fólks við þess­ari ferð, því við keyrðum aldrei út fyrir slóða. Við keyrðum á mal­ar­veg­um, en það liggja jeppa­vegir út um allt land eins og flestir Íslend­ingar vita. ­Fólk sem fer aldrei út úr 101 veit þetta ekki, en svo drullar það það yfir mann eins og maður sé búinn að eyði­leggja land­ið," sagði Jóhannes í sam­tali við Kjarn­ann.

Aðspurður um hvort mynd­bandið sýni ekki í raun vél­hjóla­menn­ina á akstri utan vega, svar­aði Jóhann­es: "Við keyrðum þessa slóða út um allt, ég var með ferð­ina afmark­aða í GPS leið­sögu­tæki, en svo fórum við upp að Heklu. Hekla er bara vikur og það er eina "off-track­ið" sem við gerð­um. Svo keyrðum við árfar­veg þar nið­ur, sem er bara hraun, það er eina "off-track­ið" sem við gerð­u­m."

Hér sjást vélhjólamennirnir aka á svæði utan slóða í námunda við Heklu. Hér sjást vél­hjóla­menn­irnir aka á svæði utan slóða í námunda við Heklu.

Jóhannes kveðst engar áhyggjur hafa af lög­reglu­rann­sókn vegna máls­ins. "Við leggjum mikið upp úr því að fara aldrei út fyrir slóða. Það var einu sinni sem einn okkar fór út úr slóða, og þá lét ég hann laga grasið, ég var svo harður á þessu. Ég sagði líka við hóp­inn að ef ein­hver færi út fyrir slóða þá yrði ekki hjólað meira þann dag­inn. Ég er ekk­ert stress­aður yfir þessu, því ég veit að við gerðum ekk­ert rang­t."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None