FÍB vill að iðgjöld bílatrygginga verði rannsökuð

tryggingar.jpg
Auglýsing

Félag íslenskra bif­reiða­eig­enda (FÍB) vill að inn­an­rík­is­ráð­herra feli Neyt­enda­stofu að rann­saka iðgjöld bíla­trygg­inga hjá trygg­inga­fé­lög­un­um. FÍB hefur ástæðu til að ætla að afnám vöru­gjalda af vara­hlutum bíla og lækkun virð­is­auka­skatts eftir ára­mót komi ekki fram í lægri iðgjöldum bíla­trygg­inga. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem barst fjöl­miðlum síð­degis frá FÍB.

Frétta­til­kynn­ingin í heild sinni



FÍB hefur ástæðu til að ætla að afnám vöru­gjalda af vara­hlutum bíla og lækkun virð­is­auka­skatts eftir ára­mót komi ekki fram í lægri iðgjöldum bíla­trygg­inga. Margir eru með end­ur­nýjun á trygg­ingum um ára­mótin og iðgjöld eru ákveðin ár fram í tím­ann. Laus­leg könnun FÍB meðal bíl­eig­enda gefur til kynna að iðgjöld hafi ekki lækkað eins og lög gera ráð fyr­ir, heldur ýmist hækkað eða staðið í stað. Á árinu sem var að líða hækk­uðu iðgjöld öku­tækja­trygg­inga langt umfram verð­bólgu þrátt fyrir fækkun alvar­legra umferð­ar­slysa.

FÍB telur til­efni til að iðgjöld trygg­inga­fé­lag­anna verði tekin til rann­sókn­ar, þar sem ástæða er til að ótt­ast að jákvæðar ytri aðstæður í öku­tækja­trygg­ingum séu ekki að skila sér til neyt­enda.

FÍB beinir því til inn­an­rík­is­ráð­herra að fela Neyt­enda­stofu að hefja rann­sókn á trygg­inga­fé­lög­unum þegar í stað. Alla jafna ætti slík rann­sókn heima hjá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu (FME) en sú stofnun er í mjög óeðli­legri stöðu. FME á að tryggja að trygg­inga­fé­lögin séu fjár­hags­lega burðug til að mæta áföllum en jafn­framt á stofn­unin að sjá til þess að ekki sé verið að inn­heimta of há iðgjöld af lög­bundnum trygg­ing­um. Fyrra hlut­verkið virð­ist vega þyngra en það síð­ara hjá FME. FÍB telur eðli­legt að svona rann­sókn sé fram­kvæmd af Neyt­enda­stofu enda snertir þetta hags­muni neyt­enda.

Auglýsing

Vísi­tala neyslu­verðs hefur hækkað um 0,81% síð­ustu 12 mán­uði. Á sama tíma hafa iðgjöld ábyrgð­ar­trygg­inga öku­tækja hækkað um 4,28% og iðgjöld kaskó­trygg­inga um 1,62%. Á nýbyrj­uðu ári lækkar kostn­aður trygg­inga­fé­lag­anna vegna öku­tækjatjóna, þar sem 15% vöru­gjald af inn­fluttum vara­hlutum verður aflagt og virð­is­auka­skattur á við­gerð­ar­vinnu, vara­hluti og nýja bíla lækkar um tæp 6%. Ekk­ert bendir til að trygg­inga­fé­lögin hafi tekið til­lit til þess­arar kostn­að­ar­lækk­unar við útgáfu iðgjalda fyrir næsta ár.

Ekki þarf að hafa mörg orð um áhrif þess þegar afnám vöru­gjalda og lækkun virð­is­auka­skatts skilar sér ekki til neyt­enda. Þessum breyt­ingum er ætlað að vega upp á móti hækkun í neðra þrepi skatts­ins. Trygg­inga­ið­gjöld vega einnig þungt í vísi­tölu verð­trygg­ing­ar. Af þessum ástæðum er mik­il­vægt að ítar­leg rann­sókn fari fram sem fyrst á hegðun trygg­inga­fé­lag­anna í þessum efn­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None