FIFA-ákærur: Kerfisbundið peningaþvætti, mútur og stórfelld spilling

blatter.jpg
Auglýsing

Ákær­urnar á hendur níu­menn­ing­unum sem hafa verið meðal æðstu stjórn­enda FIFA und­an­farin ár byggja á kerf­is­bundnu pen­inga­þvætti, mútum og stór­felldri ólög­legri hátt­semi og spill­ingu. Þetta kemur fram í ákæru­skjal­inu, sem The Guar­dian vitnar til í umfjöllun sinni, en Lor­etta Lynch, sak­sókn­ari í Banda­ríkj­un­um, sagði á blaða­manna­fundi í dag að 47 ákæru­at­riði væru upp­talin sem tengd­ust meðal ann­ars fjársvikum auk fyrr­nefndra atriða. Voru atriðin sam­an­tekin í til­kynn­ingu og kynnt á fund­in­um.

Ákæran byggir á rann­sókn Alrík­is­lög­regl­unnar FBI á spill­ingu innan FIFA, sem hófst í kjöl­far þess að ákveðið var að halda HM í Rúss­landi 2018 og Katar 2022. Rann­sóknin nær hins vegar til mun fleiri atriða sem aðeins þess­ara tveggja atriða, sam­kvæmt sem fram kom á blaða­manna­fundi sak­sókn­ara í dag.

Ákæra verður gefin út á hendur alls níu ­stjórn­endum og stjórn­ar­mönnum FIFA til við­bótar við þá sjö sem voru hand­teknir í Sviss. Á meðal þeirra sem einnig verða ákærð­ir, en voru hand­teknir í morgun, eru Jack Warn­er, fyrrum vara­for­seti FIFA frá Trini­dad og Tobago, Jef­frey Webb frá Caym­an Is­lands, vara­­for­­seti fram­­kvæmda­­stjórn­­ar FIFA, og Eu­­genio Fig­u­er­edo frá Úrúg­væ. Búist er við að nokkrir stjórn­endur íþrótta­mark­aðs­fyr­ir­tækja frá Banda­ríkj­unum og Suð­ur­-Am­er­íku verði líka ákærðir en þeir eru grun­aðir um að hafa greitt meira en 150 millj­ónir dala, um 20,2 millj­arða króna, í mútur og greiðslur undir borðið og fengið í stað­inn arð­væna fjöl­miðla­samn­inga í tengslum við stórar knatt­spyrnu­keppnir á vegum FIFA. Sepp Blatt­er, for­seti FIFA, er ekki á meðal þeirra sem hafa verið hand­tekn­ir, en ekki liggja fyrir upp­lýs­ingar um hvort hann sjálfur er til rann­sóknar hjá banda­rískum yfir­völd­um.

Auglýsing

Lynch sagði að rann­sókn hefði leitt til rann­sóknar á mál­um, þar sem djúp­stæð spill­ing hefði verið stað­fest, bæði á erlendum vett­vangi og í Banda­ríkj­un­um. Í það minnsta tvær kyn­slóðir stjórn­enda hjá FIFA eru til rann­sókn­ar, að því er fram kom í máli Lynch, þar sem grunur leikur á því að þeir hafi mis­notað aðstöðu sína til þess að þiggja mútu­greiðsls­ur. Eru brotin sem liggja til grund­vallar hand­tök­unum rakin til árs­ins 1991, sér­stak­lega greiðslur frá íþrótta­vöru­fram­leið­endum sem hindr­uðu fram­gang sam­keppn­is­að­ila með mútu­greiðsl­un­um.

Kelly Currie, starf­andi sak­sókn­ari í Banda­ríkj­un­um, sagði að ekki væru öll kurl komin til grafar ennþá í rann­sókn máls­ins, og að fleiri ákærur yrðu hugs­an­lega gefnar út á hendur stjórn­endum FIFA.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None