Fimm ráðherrar eiga fast sæti í nýrri nefnd um málefni flóttafólks og innflytjenda

10054123454_500ce92ce6_k-1.jpg
Auglýsing

Sett hefur verið á fót ráð­herra­nefnd um mál­efni flótta­fólks og inn­flytj­enda. Rík­is­stjórnin sam­þykkti þetta á fundi sínum í morg­un.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Eygló Harð­ar­dóttir félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, Ólöf Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra og Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra munu eiga fast sæti í nefnd­inn­i. Þá munu Ill­ugi Gunn­ars­son mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og Krist­ján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra taki sæti í nefnd­inni þegar fjallað er sér­stak­lega um mál­efni á þeirra ábyrgð­ar­svið­um, og aðrir ráð­herr­ar munu taka sæti eftir því sem til­efni þyk­ir.

Nefndin á að taka til umfjöll­unar stöðu mála, stefnu­mörkun og stjórn­valds­á­kvarð­anir í mál­efnum flótta­fólks, hæl­is­leit­enda og inn­flytj­enda, eftir því sem fram kemur í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. „Mark­miðið er að sam­ræma starf ráðu­neyta og stofn­ana í umræddum mála­flokkum og meta hvernig fram­lag Íslands nýt­ist best til að ná mark­miðum um mann­úð­ar­að­stoð og aðstoð við flótta­menn, hæl­is­leit­endur og inn­flytj­endur og sam­fé­lags­mál tengd mála­flokkn­um.“ 

Auglýsing

Ekk­ert kemur fram um það hvort til skoð­unar verði að fjölga kvótaflótta­mönnum sem tekið verður á móti, en rík­is­stjórnin hafði þegar til­kynnt að 50 flótta­menn kæmu hingað til lands með þessum hætti í ár og á næsta ári. „Mik­il­vægt er að standa vörð um það vand­aða fyr­ir­komu­lag sem byggt hefur verið upp hér á landi við mót­töku kvótaflótta­manna og jafn­framt að sam­þætta það fyr­ir­komu­lag ann­ars vegar og umgjörð hæl­is­leit­enda hins veg­ar,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Í til­kynn­ing­unni er haft eftir Sig­mundi Davíð að rík­is­stjórnin í heild taki þessi mál mjög alvar­lega. Boðað verði til fyrsta fundar nefnd­ar­innar í þess­ari viku. „Við ætlum okkur að vinna hratt og vel að því að kort­leggja þró­un­ina að und­an­förnu svo okkur verði kleift að bregð­ast sem best við þessum mikla vanda.“

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None