Fimmtán prósent birtingarfjár ratar í vefauglýsingar - Um 40 prósent fer í prent

19266378666_d106a87471_b.jpg
Auglýsing

Alls fór 37,4 pró­sent birt­inga­fjár til prent­miðla á árinu 2014. Þrjár af hverjum tíu krónum sem birt­ing­ar­að­ilar keyptu aug­lýs­ingar af fóru til sjón­varps­stöðva og um 15 pró­sent í birt­ingar á vefaug­lýs­ing­um. Af þeim hluta fór 17,6 pró­sent til erlendra fyr­ir­tækja á borð við Google og Face­book. Þetta kemur fram í sam­an­tekt Fjöl­miðla­nefndar á skipt­ingu birt­inga­fjár milli miðla á Íslandi árið 2014. Sam­an­tektin var unnin í sam­starfi við fimm stærstu birt­inga­hús lands­ins, ABS-­fjöl­miðla­hús, Birt­inga­hús­ið, Medi­aCom Íslandi – Fjöl­miðla­hús, HN mark­aðs­sam­skipt­i/Bestun Birt­inga­hús og Rat­sjá. Sam­kvæmt sam­an­tekt­inni voru keyptar aug­lýs­ingar fyrir tæpa 4,3 millj­arða króna í gegnum birt­inga­hús í fyrra. Vert er að taka fram að fjöl­miðlar selja einnig aug­lýs­ingar beint og án aðkomu birt­inga­húsa. Því er heild­ar­um­fang aug­lýs­inga­kök­unnar að öllum lík­indum um tvö­föld þessi upp­hæð hið minnsta.



Í til­kynn­ingu frá Fjöl­miðla­nefnd vegna birt­ingu sam­an­tek­ar­innar segir að til þessa hafi "eng­inn einn aðili haldið utan um upp­lýs­ingar um skipt­ingu birt­inga­fjár milli miðla á Íslandi og oft hefur reynst erfitt að nálg­ast slíkar upp­lýs­ing­ar. Í flestum vest­rænum ríkjum er reynt að fylgj­ast með mik­il­vægri töl­fræði um aug­lýs­ingar og upp­lýs­ingar um breyt­ingar á aug­lýs­inga­mark­aði eru birtar jafn­óð­um. Eitt af hlut­verkum fjöl­miðla­nefndar sam­kvæmt lögum um fjöl­miðla er að fylgj­ast með þróun og stöðu á fjöl­miðla­mark­aði. Með sam­starfi fjöl­miðla­nefndar og birt­inga­hús­anna tekur fjöl­miðla­nefnd, sem hlut­lægur aðili, saman þær tölur sem koma frá birt­inga­hús­unum og upp­lýsir um heild­ar­skipt­ingu birt­inga­fjár á milli miðla á Ísland­i."

Nið­ur­staða sam­an­tekt­ar­innar er sú að prent­miðlar fá enn stærstan hluta af aug­lýs­inga­kök­unni hér­lend­is, eða 29,7 pró­sent. Það þýðir að þeir skipta með sér um 1,6 millj­örðum króna sem fóru í gegnum birt­inga­hús. Um 1,3 millj­arðar króna, eða 29,7 pró­sent af heild­ar­upp­hæð­inni, fór til  sjón­varps­stöðva og 15,4 pró­sent eða 656 millj­ónir króna, til útvarps­stöðva. Inn­lendir vefir skiptu á milli sín 523 millj­ónum króna (12,3 pró­sent) og erlendir vefir á borð við Face­book og Google fengu 111 millj­ónir króna (2,6 pró­sent). Aðrir fengu 110 millj­ónir króna, eða 2,6 pró­sent.

Auglýsing

Sam­kvæmt Fjöl­miðla­nefnd er þessi skipt­ing í and­stöðu við það sem á sér stað í við­mið­un­ar­lönd­um, þar sem aukin áhersla er á vefaug­lýs­ing­ar. Í til­kynn­ingu nefnd­ar­innar seg­ir: "Aug­lýs­inga­lands­lagið hefur tekið stór­stígum breyt­ingum á Norð­ur­lönd­unum á síð­ustu árum og þró­ast með þeim hætti að hlutur erlendra vef­miðla hefur auk­ist mjög á kostnað inn­lendra miðla. Vef­miðlar fengu langstærstan hluta birt­inga­fjár í Dan­mörku árið 2013 en sjón­varp kom þar næst á eft­ir. Dönskum prent­miðlum hefur hins vegar gengið illa að laða til sín aug­lýsendur á síð­ustu árum og minnk­aði hlutur dag­blaða á aug­lýs­inga­mark­aði um 55% á árunum 2000-2013 í Dan­mörku.

Þess má einnig geta að nið­ur­stöður sam­an­tektar fjöl­miðla­nefndar og íslensku birt­inga­hús­anna eru um margt á skjön við fréttir sem birt­ust í febr­úar sl. þess efnis að hlutur vefaug­lýs­inga hér á landi hafi farið fram úr sjón­varps­aug­lýs­ingum á árinu 2014 og að hlut­fall aug­lýs­inga á vefnum væri orðið um 26% af heild­ar­veltu en fréttir þessar voru byggðar á upp­lýs­ingum um heild­ar­veltu hér­lendrar aug­lýs­inga­stofu á því ári. Sam­kvæmt nið­ur­stöðum fjöl­miðla­nefndar rennur langstærstur hluti birt­inga­fjár á Íslandi ennþá til prent­miðla og eiga vef­miðlar tölu­vert langt í land með að ná sömu yfir­burða­stöðu og vef­miðlar í nágranna­löndum hafa náð. Hlut­fall inn­lendra og erlendra vef­miðla nam sem fyrr segir ein­ungis 14,9% af heild­ar­veltu árið 2014 á móti 37,4% hlut­falli prent­miðla og 29,7% hlut­falli sjón­varps­miðla. Þrátt fyrir að tölvu- og net­notkun sé mest á Íslandi af öllum Evr­ópu­ríkj­un­um2 sker Ísland sig að þessu leyti frá nágranna­ríkjum sín­um. Þar hefur þró­unin verið sú að aug­lýsendur eru að færa sig yfir á netið í stórum stíl. Mark­aðs­fyr­ir­tækið Group M hefur spáð því að árið 2015 verði Bret­land fyrsta landið í heim­inum þar sem meira en helm­ingur allar aug­lýs­inga­tekna renni til vef­miðla. Þau lönd sem talin eru veita Bret­landi hvað harð­asta sam­keppni í þessum efnum eru Sví­þjóð (vef­miðlum spáð 47% hlut­falli aug­lýs­inga­tekna 2015), Dan­mörk (43%), Ástr­alía (42%) og Nor­egur (40%)."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None