Fjárlög 2016: Afgangur, aukin útgjöld og engar aðhaldsaðgerðir

Slack-for-iOS-Upload-1.jpg
Auglýsing

Gert er ráð fyrir 15,3 millj­arða króna afgangi í fjár­lögum næsta árs. Tollar verða afnumdir á fatn­aði og skóm um næstu ára­mót, tekju­skattur verður lækk­að­ur, gert er ráð fyrir 2,6 millj­arða króna fram­lagi til hús­næð­is­mála og fram­lög til heil­brigð­is­mála, mennta­mála og almanna­trygg­inga.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í kynn­ingu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins á fjár­lögum fyrir árið 2016. Áætlað er að útgjöld rík­is­ins á árinu 2016 verði 681 millj­arður króna, sam­an­borið við 659 millj­arða í ár miðað við áætlun stjórn­valda. Búist er við að tekjur auk­ist og verði 693,3 millj­arðar króna sam­an­borið við 680,1 millj­arðar í ár.

Auglýsing

Tekju­skattur lækkar um ára­mót

Lækka á tekju­skatt ein­stak­lingar í tveimur áföng­um. Seinna skrefið fækkar skatt­þrepum úr þremur í tvö. Skatt­pró­sentan í lægra þrepi verður lækkuð úr 22,86 pró­sent í 22,68 pró­sent, eða um 0,18 pró­sent­ur, þann 1. jan­úar næst­kom­andi. Í árs­byrjun 2017 verður þrepið lækkað í 22,5 pró­sent. Álag í milli­þrepi verður lækkað um helm­ing frá árs­byrjun 2016 og munu falla saman við neðsta þrepið um ára­mótin 2016/2017.



Gert er ráð fyrir 3 pró­sent hækkun bóta­fjár­hæða í fjár­laga­frum­varpi næsta árs auk þess sem gert er ráð fyrir 9,4 pró­senta hækkun á bótum elli- og örorku­líf­eyr­is­þega.

Skulda­staðan batnar

Stefnt er að áfram­hald­andi lækkun skulda og á skulda­hlut­fall­ið, sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu, að vera 62 pró­sent um næstu ára­mót og 50 pró­sent í lok árs 2016. Þetta hlut­fall fór hæst í 85 pró­sent í lok árs 2011. Vaxta­gjöld rík­is­sjóðs eiga að lækka um 8,1 millj­arð á næsta ári miðað við fjár­lög. Þar munar estu um upp­greiðslu skulda­bréfs vegna end­ur­fjár­mögn­unar Seðla­banka Íslands eftir fjár­mála­hrun­ið.



Enn­fremur er ljóst að áætlun um losun fjár­magns­hafta gefur mögu­leika á að lækka skuldir og skuld­bind­ingar rík­is­sjóðs umtals­vert á næstu miss­er­um. Áætlun um losun hafta hefur þegar stuðlað að bættu láns­hæf­is­mati rík­is­sjóðs og þar með betri vaxta­kjörum á fjár­mála­mörk­uð­u­m,“ segir í kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Engar aðhalds­að­gerðir

Tekið er fram að engar aðhalds­ráð­staf­anir séu gerðar vegna almanna- og atvinnu­leys­is­trygg­inga, mennta­mála og heil­brigð­is­stofn­ana. Fram­lög til heil­brigð­is­mála aukast um 1,6 millj­arða og stutt verður við nýsköpun umg vís­indi með auknum fram­lögum upp á tvo millj­arða króna. Þá er tekið fram að sér­stök fram­lög verði veitt til að stofna emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, sem miðar að því að skjóta styrk­ari stoðum undir ákæru­vald í land­inu og auka máls­hraða.



Kynn­ing á vef fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None