Fjármálaeftirlitið segir gögn Víglundar ekki hafa lekið frá stofnuninni

vigundur_gagnrynir.copy_.013.jpg
Auglýsing

Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) segir ekk­ert benda til þess að þau gögn sem Víglundur Þor­steins­son sendi á fjöl­miðla og þing­menn síð­ast­liðin fimmtu­dag hafi lekið frá stofn­un­inni. „Fyrir liggur að þessi gögn voru til á fleiri stöðum en í Fjár­mála­eft­ir­lit­in­u,“ segir í svari FME við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Á meðal þeirra gagna sem Víglundur sendi vor­u bráða­birgða­reikn­ings­yf­ir­lit frá end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækjum þremur sem FME sendi inn á bank­ana til að fá yfir­lit yfir stöðu þeirra. Í þeim kemur meðal ann­ars fram hversu mikið af lánum ýmissa nafn­greindra fyr­ir­tækja voru afskrif­aðar þar sem þau þóttu ekki inn­heimt­an­leg. Í bréfi sem Víglundur sendi Ein­ari K. Guð­finns­syni, for­seta Alþing­is, sagði hann að það hefði atvikast svo að „ókunnur aðili sem ég hef nefnt hinn „nýja litla síma­mann“ sendi mér alla stofnúr­skurði FME um nýju bankana“.

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um ásak­anir Víg­lundar í síð­ustu viku.

Auglýsing

Engin getur rann­sakað nema FME



Kjarn­inn beindi fyr­ir­spurn til FME um málið og spurði hvort verið væri að rann­saka lek­ann? Í svari FME kemur fram að stofn­unin gefi almennt ekki svör við spurn­ingum um mál sem eru, eða kunni að vera, til með­ferðar hjá henni. „En ljóst er að ef um er að ræða brot gegn  58. gr. laga nr. 161/2002, getur eng­inn annar en FME staðið að frum­rann­sókn og kæru til lög­reglu, sbr. 112. gr. í lög­un­um“. Sú grein snýr að banka­leynd.

Í svari FME segir einni að stofn­un­inni sé ekki kunn­ugt um að gögnin sem Víglundur sendi hafi lekið frá henni né bendi nokkuð til þess að svo hafi ver­ið. „Fyrir liggur að þessi gögn voru til á fleiri stöðum en Fjár­mála­eft­ir­lit­in­u,“ segir í svar­inu.

Hafa gefið í skyn að birt­ing brjóti gegn lögum



FME hefur ítrekað látið í það skína á und­an­förnum árum að stofn­unin telji að birt­ing slíkra gagna brjóti í bága við lög um banka­leynd. Í ágúst 2013 krafð­ist FME til að mynda að Kjarn­inn myndi fjar­lægja skýrslu PwC um mál­efni Spari­sjóðs­ins í Kefla­vík af vef sínum og vitn­aði m.a. í lög um banka­leynd. Auk þess gaf FME í skyn að birt­ing skýrsl­unnar gæti varðað við almenn hegn­ing­ar­lög.

Kjarn­inn hafn­aði beiðni FME með þeim rökum að upp­lýs­ing­arnar ættu erindi við almenn­ing. FME aðhafð­ist ekki frekar gagn­vart Kjarn­an­um. Skýrslan er enn aðgengi­leg á vef Kjarn­ans. Hana má lesa hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None