Fjöldi árása í Tyrklandi

tyrkir.jpg
Auglýsing

Mörg ofbeld­is­verk hafa verið framin í Tyrk­landi í dag, í átökum milli örygg­is­sveita Tyrkja ann­ars vegar og her­manna Kúrda hins veg­ar. Í hér­að­inu Sirnak lést einn her­maður þegar þyrla var skotin niður og fjórir lög­reglu­menn lét­ust í sprengju­árás á svæð­inu Silopi í sama hér­aði. Í Ist­an­búl hófu tveir ein­stak­lingar skot­hríð fyrir utan ræð­is­skrif­stofu Banda­ríkj­anna, örfáum klukku­stundum eftir að sprengja sprakk fyrir utan lög­reglu­stöð í borg­inni í nótt. Eng­inn meidd­ist í árásinni fyrir utan ræð­is­skrif­stof­una en þrír lög­reglu­menn og sjö óbreyttir borg­arar slös­uð­ust þegar sprengjan sprakk. The Guar­dian og BBC greina frá.

The Guar­dian birtir mynd­band frá lög­reglu­stöð­inni þar sem hópur fólks safn­að­ist ­sam­an, eftir að sprengjan sprakk.

Spenna milli Tyrkja og Kúrda hefur farið stig­vax­and­i.Vopna­hléi í langvar­andi ill­deilum virð­ist hafa lokið í síð­asta mán­uði, þegar Tyrkir hófu sprengju­árásir á búðir Verka­manna­flokks Kúrda (PKK) í norð­ur­hluta Írak, á sama tíma og Tyrkir hófu loft­árásir gegn her­liðum Íslamska rík­is­ins (IS­IS). Í kjöl­far ára­sanna í dag réð­ist tyrk­neski her­inn að skot­mörkum PKK í Írak í hefnd­ar­skyni, að því er segir í umfjöllun BBC.

Auglýsing

For­ingi PKK hefur sakað Tyrki um að vernda ISIS með árásum á kúr­dneska her­menn en Kúrdar hafa barist gegn fram­gangi Íslamska rík­is­ins í Írak og Sýr­landi með árangri. Tyrk­land, og fleiri vest­ræn lönd, telja PKK aftur á móti vera hryðju­verka­sam­tök.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None