Fjórar vikur frá því að stóra Kaupþingsmálið var dómtekið - ekkert bólar á niðurstöðu

hreidar-mar.jpg
Auglýsing

Í dag eru fjórar vikur síðan að aðal­með­ferð í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings lauk. Sam­kvæmt lögum skal dóm­ari birta dóm sinn innan fjög­urra vikna, en það hefur komið fyrir í stærri málum að það frest­ist. Verði dómur ekki kveðin upp innan átta vikna gæti hins vegar þurft að end­ur­flytja mál­ið.

Hólm­steinn Gauti Sig­urðs­son, sak­sókn­ari hjá sér­staks sak­sókn­ara, segir emb­ætt­inu ekki hafa borist nein til­kynn­ing frá hér­aðs­dómi um að dómur liggi fyr­ir.

Alls eru níu fyrrum starfs­menn Kaup­þings ákærðir í mál­inu. Þeirra á meðal eru Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrrum for­stjóri Kaup­þings, Magnús Guð­munds­son, fyrrum for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, og Sig­urður Ein­ars­son, fyrrum starf­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings. Ákærðu er gefið að sök að hafa ýmist komið í veg fyrir eða hægt á lækkun á verði hluta­bréfa í Kaup­þingi, frá hausti 2007 og fram að falli bank­ans haustið 2008, og aukið selj­an­leika þeirra með „kerf­is­bundn­um“ og „stór­felld­um“ kaup­um, eins og segir í ákæru, í krafti fjár­hags­legs styrks bank­ans.

Auglýsing

Aðal­með­ferð máls­ins tók 130 klukku­stundir og stóð yfir í 22 daga. Málið er eitt stærsta mál sinnar teg­undar í Íslands­sög­unni.

Fleiri mál framundan



Þrír sak­born­ing­anna í mál­inu hafa þegar hlotið þunga dóma í Al Than­i-­mál­inu svo­kall­aða. Í því máli voru Sig­urður Ein­ars­son, Hreiðar Már Sig­urðs­son, Magnús Guð­munds­son og Ólafur Ólafs­son, sem átti tæp­lega tíu pró­sent hlut í Kaup­þingi fyrir fall hans, dæmdir sekir í Hæsta­rétti í febr­úar síð­ast­liðn­um. Hreiðar Már fékk fimm og hálfs árs fang­elsi, Sig­urður fjögur ár, Ólafur og Magn­ús ­fjögur og hálft ár. Þeir hafa allir hafið afplánun á dómum sín­um.

Þetta eru ekki einu málin sem menn­irnir hafa verið ákærðir í. Hreiðar Már, Magnús og Sig­urður eru einnig ákærðir í CLN-­mál­inu svo­kall­aða en þar er þeim gefið að sök að hafa mis­notað stöðu sína sem stjórn­endur bank­ans í lán­veit­ingum til nokk­urra félaga ­sem voru í eigu við­skipta­vina bank­ans. Lánin voru svo notuð til að kaupa skulda­trygg­ingar á Kaup­þing banka, eða svokölluð Credit Lin­ked Not­es, ­með það að mark­miði að lækka álagið og freista þess að opna fyrir fjár­veit­ingar til bank­ans á mark­aði.

Þriðja málið sem er fyrir dóm­stól­um, og bein­ist að Kaup­þings­stjórn­end­um, er Marp­le-­mál­ið svo­nefnda, en Hreiðar Már og Magnús eru ákærðir í því ásamt Guð­nýju Örnu Sveins­dótt­ur, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóra bank­ans, og Skúla Þor­valds­syni, fjár­festi og fyrr­ver­andi stórs hlut­hafa Kaup­þings. Ákært er fyrir fjár­drátt, þegar færðir vor­u átta millj­arðar króna úr sjóðum Kaup­þings til félags­ins Marp­le, sem var í eigu Skúla Þor­valds­son­ar, án þess að heim­ild væri fyrir því. Búist er við því að aðal­með­ferð þess máls fari fram í haust.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None