Fjórir nýir virkjanakostir samþykktir úr atvinnuveganefnd

Hagavatn_._Eystri.Hagafellsj.kull_.1.jpg
Auglýsing

Meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar afgreiddi breyt­ing­ar­til­lögu um ramma­á­ætlun úr nefnd­inni á fundi sínum í morg­un. Með breyt­ing­ar­til­lög­unni er lagt til að fjórir virkj­ana­kostir til við­bótar við Hvamms­virkjun verði færðir úr bið­flokki áætl­un­ar­innar í nýt­ing­ar­flokk. Umhverf­is­ráð­herra lagði fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu í haust um að Hvamms­virkjun yrði færð úr bið­flokki í nýt­ing­ar­flokk.

Þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar vöktu máls á þess­ari afgreiðslu í upp­hafi þing­fundar nú eftir hádegi og gagn­rýndu vinn­una mjög. Stein­grímur J. Sig­fús­son þing­maður VG sagði alla vinnu meiri­hlut­ans í mál­inu vera til skamm­ar. „Öll fag­leg ferli og vinnu­brögð eru þver­brot­in, farið er gegn anda og inn­taki lag­anna um ramma­á­ætl­un,“ sagði hann.

Þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar sögðu meiri­hlut­ann fara gegn lögum um ramma­á­ætlun með afgreiðslu sinni á mál­inu, ekki síst vegna þess að einn virkj­ana­kost­ur­inn, Haga­vatns­virkj­un, hefur ekki verið full­kann­aður af verk­efn­is­stjórn um ramma­á­ætl­un. Svan­dís Svav­ars­dóttir þing­maður VG sagð­ist telja breyt­ing­ar­til­lög­una óþing­tæka og að ef málið ætti að ná fram að ganga þyrfti stjórnin að leggja fram breyt­ing­ar­til­lögu um lög um ramma­á­ætl­un. Undir þetta tóku bæði Stein­grímur J. Sig­fús­son og Árni Páll Árna­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar.

Auglýsing

Jón Gunn­ars­son, for­maður atvinnu­vega­nefndar Alþing­is, sagði í sam­tali við RÚV í hádeg­inu að hann gerði ráð fyrir ágrein­ingi við minni­hlut­ann á þing­inu vegna máls­ins. „Það hafa kannski alltaf verið ákveðin átök um það að fara í þessar fram­kvæmdir en við teljum mjög brýnt, og það sýnir sig auð­vitað í stöðu mála sem er alvar­leg í raf­orku­fram­leiðslu okk­ar, að það sé höggið á þennan hnút og menn geti lát­ið þessi hjól snú­ast að nýju.“ Hann sagði jafn­framt að verið væri að fylgja máls­með­ferð sem gert sé ráð fyrir í lög­um. Alþing­is­menn hafi fulla heim­ild til þess sam­kvæmt lögum að leggja fram breyt­ing­ar­til­lögur um mál.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None