Flest mál sem ekki hafa drifið alla leið í umhverfis- og félagsmálaráðuneytum

Af þeim málum sem ríkisstjórnin setti í stjórnarsáttmálann fyrir tæpum fjórum árum eru flest mál ókláruð, samkvæmt huglægu mati stjórnvalda sjálfra, í umhverfis- og félagsmálaráðuneytum.

Á vef stjórnarráðsins er hægt að nálgast lista yfir framgang málanna sem voru í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur.
Á vef stjórnarráðsins er hægt að nálgast lista yfir framgang málanna sem voru í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur.
Auglýsing

Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur seg­ist vera búin að ljúka alls 73 pró­sentum þeirra aðgerða sem hún ætl­aði sér að ráð­ast í á kjör­tíma­bil­inu, eða 137 af þeim 189 málum sem til stóð að ráð­ast í.

Fjöru­tíu og sjö mál eru sögð komin vel á veg, í yfir­liti sem birt er yfir stöðu aðgerða sem flokk­arnir þrír sem mynd­uðu rík­is­stjórn eftir kosn­ing­arnar árið 2017 urðu ásáttir um að hrinda í fram­kvæmd.

Á sér­stakri yfir­lits­síðu um fram­kvæmd stjórn­ar­sátt­mál­ans er aðgerð­unum í stjórn­ar­sátt­mál­anum skipt í þrjá flokka eftir stöðu þeirra; haf­ið, komið vel á veg og lok­ið.

Hug­lægt mat

Tekið er fram að þetta mat á stöðu aðgerða sé byggt á hug­lægum þáttum en ekki hlut­læg­um. Þetta er því eins konar sjálfs­mat stjórn­valda á eigin verkum á kjör­tíma­bil­inu og þeim fyr­ir­heitum sem sett voru í stjórn­ar­sátt­mál­an­um.

Ef eitt­hvað form­legt ferli er komið af stað, til dæmis búið að setja á fót nefnd, þá telst verk­efnið haf­ið. Það er svo sagt komið vel á vel þegar það hefur verið mótað að mestu leyti og nið­ur­staða í aug­sýn.

Auglýsing

Þegar verk­efnum er sagt lokið er bæði átt við um hafi verið að ræða ein­skipt­is­verk­efni sem kláruð voru á kjör­tíma­bilin og „við­var­andi verk­efni til fram­tíðar sem unnið var með góðum árangri að á kjör­tíma­bil­inu í sam­ræmi við stefnu ráð­herra.“

Flest mál undir hatti umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins

Alls voru málin 189 tals­ins og 137 þeirra lokið sam­kvæmt skil­grein­ingum stjórn­ar­ráðs­ins, eins og áður seg­ir.

Þegar litið er til þess undir hvaða ráðu­neyti flest verk­efni heyra sést að verk­efnin í stjórn­ar­sátt­mál­anum voru flest í umhverf­is­ráðu­neyt­inu, eða alls 30 tals­ins. Þar eru einnig flest verk­efnin enn ókláruð, en tólf aðgerðir eru sagðar komnar vel á veg og ein haf­in.

Á meðal verk­efna sem sögð eru vel á veg komin er til dæmis stofnun mið­há­lend­is­þjóð­garðs, en ekki reynd­ist sam­staða á meðal rík­is­stjórn­ar­flokk­anna um frum­varp Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra um mál­ið, sem lagt var fram á síð­asta þing­vetri.

Næst­flest mál í stjórn­ar­sátt­mál­anum voru undir hatti atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins, 28 tals­ins. Af þeim er fimm verk­efnum ólok­ið, en þau þó öll sögð vel á veg kom­in.

Í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu voru 27 mál sem féllu undir stjórn­ar­sátt­mál­ann og er 23 þeirra lokið sam­kvæmt skil­grein­ingum stjórn­valda. Upp­bygg­ing nýs þjóð­ar­leik­vangs í knatt­spyrnu í Laug­ar­dal er eitt af þeim málum sem sögð eru komin vel á veg í mennta­mála­ráðu­neyt­inu.

Fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið og félags­mála­ráðu­neytið voru síðan hvort um sig með 25 mál á sinni könnu. Í félags­mála­ráðu­neyt­inu er tólf málum enn ólokið en í fjár­mála­ráðu­neyt­inu eru málin fimm, sam­kvæmt sam­an­tekt stjórn­valda.

Heil­brigð­is­ráðu­neytið var svo með 14 mál á lista sem ráð­ast átti í og segir á vef stjórn­valda að níu þeirra sé lok­ið, á meðan að fimm séu komin vel á veg.

Auglýsing

Í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu voru 13 mál sem átti að hrinda í fram­kvæmd og ell­efu þeirra hafa klárast, sam­kvæmt mati stjórn­valda. Eitt er sagt komið vel á veg, en ann­að, stjórn­ar­skrár­breyt­ing­ar, er ein­ungis sagt haf­ið. Í umfjöllun um það mál segir að frum­varp Katrínar Jak­obs­dóttur til breyt­inga hafi ekki orðið útrætt í þing­inu.

Færri mál voru á hendi ann­arra ráðu­neyta. Öllum ell­efu mál­unum skráð voru á sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið er lok­ið, sam­kvæmt mati stjórn­valda, en ein­ungis fimm af þeim níu málum sem voru á hendi dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins. Þau fjögur sem eftir standa eru þó sögð komin vel á veg.

Fæst mál voru á ábyrgð utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, eða sjö tals­ins. Af þeim er búið að ljúka fimm, sam­kvæmt mati stjórn­valda.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent