Flugmaður rekinn eftir „selfie“ í miðju flugi

jal.japan_.airlines.777.300.ja742j.02tko.pae_.ndlr_.jpg
Auglýsing

Jap­anska flug­fé­lagið Japan Air­lines leysti á dög­unum flug­mann frá störfum eftir að hann tók svo­kall­aða „sjálfu,“ eða sel­fi­e-­ljós­mynd af sjálfum sér og ungri flug­freyju er hann flaug far­þega­þotu félags­ins. Frétta­mið­ill­inn Bloomberg greinir frá mál­inu.

Í til­kynn­ingu frá flug­fé­lag­inu kemur fram að rekja megi upp­sögn flug­manns­ins til brota hans á reglum þar sem kveðið sé á um að flug­menn séu ávallt á tánum „á vakt­inn­i.“

Ljós­myndin örlaga­ríka var tekin þann 7. júní síð­ast­lið­inn á flug­leið frá Norð­ur­-Japan til Osaka, en þá hafði annar flug­maður far­þega­vél­ar­innar brugð­ið ­sér á sal­ern­ið. Þá gerði hinn flug­mað­ur­inn sér lítið fyr­ir, kall­aði á flug­freyju og sagði henni að setj­ast í autt flug­manns­sætið og tók mynd af þeim í flug­stjórn­ar­klef­an­um. Far­þega­þotan var þá í 10.000 feta hæð.

Auglýsing

Ekki liggur fyrir hvernig jap­anska flug­fé­lagið komst á snoðir um mynda­tök­una, þar sem myndin rataði ekki á sam­fé­lags­miðla. Flug­fé­lagið hefur ekki svarað fyr­ir­spurnum frétta­mið­ils­ins Quartz um atvik­ið, sem sömu­leiðis fjallar um málið.

Víða pottur brot­inn



Reglur um notk­un raf­tækja í eigin þágu í flug­stjórn­ar­klefum far­þega­flug­véla eru mis­mun­andi eftir lönd­um. Í Banda­ríkj­unum er flug­mönnum óheim­ilt að nota raf­tæki í flug­stjórn­ar­klefum far­þega­flug­véla í eigin þágu, nema í neyð­ar­til­vik­um. Þá er allt óvið­kom­andi áreiti harð­bannað í stjórn­klefum flug­véla í flug­taki, lend­ingu og er vélin er á ferð á jörðu niðri.

Sam­kvæmt rann­sókn Quartz frá því í fyrra, eru brot á regl­unum útbreidd á meðal flug­manna, en dæmi eru um að flug­menn taki myndir af sér eða öðrum á flugi og setji inn á sam­fé­lags­mið­il­inn Instagram.

Í umfjöllun Quartz var haft eftir loft­ferða­eft­ir­lits­mönnum að far­þega­flug­vél hafi aldrei lent í óhappi vegna þess að flug­menn voru að nota raf­tæki sín í vinn­unni. Hins vegar hafi slík til­vik komið upp hjá öðrum loft­för­um. Sam­kvæmt banda­rískum yfir­völdum olli sjálfa flug­slysi nærri Den­ver í Colorado ríki, þar sem tveir flug­menn létu líf­ið. Þá sak­aði flugnemi kennar­ann sinn um að hafa verið í mynd­sím­tali í sím­anum sínum rétt áður en þyrla sem þeir flugu brot­lenti.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None