Flugstjóranum fagnað sem hetju í Taívan

flugslys_taipei.jpg
Auglýsing

Flug­stjóri flug­vélar TransAsia sem hrap­aði í Keel­ung-fljót í gær­morgun er nú fagnað sem hetju á sam­fé­lags­miðlum í Taí­van og Kína. Liao Chi­en-tsung, flug­stjóri, er sagður hafa með snar­ræði forðað stór­slysi þegar flug­vél­in missti skyndi­lega vél­ar­afl stuttu eftir flug­tak frá Songsj­an-flug­velli í Taípei. Frá þessu er meðal ann­ars greint á vef Quartz.

Áætluð flug­leið flugs GE235 frá Taípei til Kin­men-eyju undan ströndum Kína liggur yfir þétta byggð borg­ar­inn­ar. Stuttu eftir flug­tak kvikn­aði í hreyfli vél­ar­innar með þeim afleið­ingum að hún tók að missa hæð. Liao náði að stýra vél­inni hættu­lega nálægt þökum hús­anna yfir Keel­ung-fljót sem hlykkj­ast í gegnum borg­ina. Litið hefur verið á flug­leið­ina sem vís­bend­ingu um að Liao hafi reynt að forð­ast flug­slys í íbúða­byggð.

taipei-flug-kort Flug­leið þot­unnar er merk með rauðu frá því að hún tók á loft 10:53 að stað­ar­tíma í Taípei. Tveimur mín­útum seinna hafði hún hrapað í Keel­ung-fljót. App­el­sínugula línan sýnir áætl­aða flug­leið.

Auglýsing

 

Svo fór að flug­vél­in hrap­aði í ána eftir að hafa rekið annan væng­inn í brú sem liggur yfir fljót­ið. Liao og flug­maður hans fór­ust báðir í slys­inu. Á fimmtu­dags­morgni höfðu 15 af far­þeg­unum 58 fund­ist á lífi. Tólf eru enn týndir en 31 eru látn­ir. Tala þeirra sem hefðu farist hefði að öllum lík­indum verið mun hærri ef vél­in hefði hrapað í borg­ar­þyrp­ing­unni. Öku­maður og far­þegi gula leigu­bíls­ins sem varð fyrir væng þot­unnar sök­uðu ekki.

„Snör við­brögð flug­mann­anna ­björg­uðu mörgum manns­líf­um,“ sagði Chris Lin, bróðir eins far­þeg­anna sem komust lífs af. „Ég var flug­maður sjálfur og hef nokkra þekk­ingu á því hversu snör hand­tökin þurfa að vera í svona aðstæð­u­m.“

https://www.youtu­be.com/watch?v=eg1c_6fLETk

Íbúar í Taípei lof­uðu flug­stjór­ann á Face­book og öðrum sam­fé­lags­miðlum í gær og sögðu meðal ann­ars að „mynd­bandið sýni að flug­vélin taki skyndi­lega krappa beygju yfir brúnni, þegar hann reyndi að forð­ast bygg­ingar og íbúða­blokk­ir. Flug­menn­irnir fá kærar þakkir fyrir að bjarga Nankang-hverf­in­u“.

Flug­grein­endur segja enn of snemmt að segja með vissu að flug­menn­irnir hafi vís­vit­andi haldið þot­unni á lofti yfir húsa­þyrp­ing­unni. Þeir benda þó á að áhöfnin hafi hugs­an­lega stefnt á fljótið til að lág­marka mann­skaða.

Rann­sókn á slys­inu er hafin og flug­riti vél­ar­innar hefur fund­ist svo hægt er að greina nákvæm­lega hvað fór fram í stjórn­klefa vél­ar­innar áður en hún fórst.

Aðstæður eru erfiðar á slystað. Fljótið er nokkuð straumþungt þar sem flak vélarinnar marar í hálfu kafi. Aðstæður eru erf­iðar á slystað. Fljótið er nokkuð straum­þungt þar sem flak vél­ar­innar marar í hálfu kafi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None