FME: Nauðasamningar mun ákjósanlegri en stöðugleikaskattur

fme.jpg
Auglýsing

Flest bendir til að nauða­samn­ings­lausn með stöð­ug­leika­fram­lagi slita­búa föllnu bank­anna sé mun ákjós­an­legri leið frá sjón­ar­miði fjár­mála­stöð­ug­leika, heldur en álagn­ing stöð­ug­leika­skatts. Er þetta mat Fjár­mála­eft­ir­lits­ins sem skilað hefur umsögn til Alþingis um frum­varp til laga um stöð­ug­leika­skatt. Tekið er fram að nið­ur­staða eft­ir­lits­ins liggi ekki end­an­lega fyr­ir, en það vinnur nú í sam­starfi við Seðla­banka Íslands að mati á áhrifum þeirra til­lagna sem lagðar hafa verið fram um losun fjár­magns­hafta á ein­stök fjár­mála­fyr­ir­tæki og og fjár­mála­mark­að­inn í heild. Að mati FME er nauða­samn­ings­lausn betri en stöð­ug­leika­skattur „vegna þess að stöð­ug­leika­fram­lag tekur mið af aðstæðum í hverju búi fyrir sig og er háð nokkrum óorðnum og ófyr­ir­sjá­an­legum atburð­u­m“.

Tekið er fram í umsögn FME að þrátt fyrir að til­lögur stærstu kröfu­hafa þriggja stærstu slita­bú­anna um nauða­samn­inga liggi þegar fyrir, og byggja á sam­ráði við stjórn­völd um nauð­syn­leg stöð­ug­leika­skil­yrði, þá séu engu að síður sterk rök fyrir því að frum­varpið um stöð­ug­leika­skatt verði að lög­um. „Hvorki getur talist öruggt að nauða­samn­ingar fáist sam­þykktir af auknum meiri­hluta kröfu­hafa né af hálfu stjórn­valda. Auk þess liggur ekki fyrir að sam­bær­legir nauða­samn­ingar séu í und­ir­bún­ingi fyrir önnur slitabú en stóru bank­anna þriggja.“

Auglýsing


Tvö frum­vörp fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sem snúa að losun fjár­magns­hafta voru lögð fram á Alþingi þann 8. júní síð­ast­lið­inn, um stöð­ug­leika­skatt ann­ars vegar og nauða­samn­inga hins veg­ar. Frum­vörpin voru lögð fram í kjöl­far þess að áætlun stjórn­valda var kynnt á blaða­manna­fundi í Hörpu. Frestur til að senda Alþingi umsögn vegna laga­breyt­ing­anna rann út í dag.

Lög­festi ráð­stöfun stöð­ug­leika­fram­lags

FME telur það jafn­framt jákvætt að í frum­varp­inu sé til­greint að ráð­stöfun stöð­ug­leika­skatts skuli sam­rým­ast mark­miðum um efna­hags­legan og fjár­mála­legan stöð­ug­leika. Ástæða sé til að skoða hvort unnt sé að skil­greina sam­bæri­legt mark­mið um ráð­stöfun stöð­ug­leika­fram­lags. „Einnig er jákvætt að frum­varp­ið, og áætlun stjórn­valda um losun hafta í heild sinni, geri ráð fyrir frjálsri sölu á óbeinum eign­ar­hlutum slita­bú­anna í starf­andi við­skipta­bönkum sam­kvæmt almennum regl­um. Það verður svo hlut­verk Fjár­mála­eft­ir­lits­ins að meta hvort nýir eig­endur telj­ist hæfir til að fara með virka eign­ar­hluti á grund­velli laga um fjár­mála­fyr­ir­tæki nr. 161/2002,“ segir í umsögn FME.

Nið­ur­greiðsla skulda hefur áhrif á fjár­festa

„Skoða þarf þó sér­stak­lega hvort nauð­syn­legt sé að bregð­ast við ýmsum hlið­ar­á­hrifum vegna stöð­ug­leika­skatts eða stöð­ug­leika­fram­lags,“ segir í umsögn Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, und­ir­ritað af Jóni Þór Sturlu­syni, aðstoð­ar­for­stjóra FME, og Lilju Rut Krist­ó­fers­dótt­ur, fram­kvæmda­stjóra grein­inga FME. Hlið­ar­á­hrif gætu orðið nei­kvæð hvað varð­ar­ fjár­fest­inga­mögu­leika fjár­festa, þar með talið líf­eyr­is­sjóða, vegna lækk­unar á skuldum rík­is­sjóðs og til­heyr­andi áhrifum á fram­boð rík­is­tryggðra skulda­bréfa. „í Ijósi þess að inn­lendar skuldir rík­is­sjóðs nema um 1.100 mö.kr. (þaraf eru mark­aðs­skulda­bréf um 880 ma.kr.) á meðan áætl­aðar tekjur rík­is­sjóðs af stöð­ug­leika­skatti geta sam­kvæmt grein­ar­gerð frum­varps­ins orðið 845 ma.kr. má Ijóst vera að ráð­stöfun stöð­ug­leika­skatts (eða stöð­ug­leika­fram­lags) til lækk­unar á skuldum rík­is­sjóðs hefur umtals­verð áhrif á fram­boð af rík­is­tryggðum skulda­bréf­um. Það gæti aftur haft nei­kvæð áhrif á fjár­fest­ing­ar­mögu­leika fjár­festa, þ.m.t. líf­eyr­is­sjóða, nema heim­ildir til ann­arra fjár­fest­inga verð' auknar stór­lega, og fram­boð veð­hæfra eigna í við­skiptum fjár­mála­fyr­ir­tækja við Seðla­banka íslands,“ segir í umsögn­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None